Úrval - 01.10.1968, Qupperneq 115
LIFANDI DAUÐI TIL SÖLU
113
í gegn, líkt og væri um menn úr
utanríkisþj ónustunni að ræða.
„Eg er hér í stuttri sendiför í
embættiserindum,“ sagði yfirlög-
regluþjónninn við landamæraverð-
ina. „Við komum aftur seinna í
nótt.“
Og það var ekkert leitað í bif-
reiðinni í bakaleiðinni, hvorki við
sýrlenzku né líbanonsku landa-
mærastöðina. Þeir náðu til Beirut
aftur í dögun. Levonian sagði yfir-
lögregluþjóninum, að hann skyldi
aka að lítilli verzlun í verzlunar-
hverfi borgarinnar niðri í miðbæ.
Svo opnaði hann farangursgeymsl-
una, tók upp tvær ferðatöskur og
bar þær inn í verzlunina. Abdul
hafði afhent honum ferðatöskurnar
í Damaskus. í hvorri þeirra voru
25 eins kíló pokar af morfínbasa.
KARTÖFLUPOKI
Inni í verzluninni afhenti Levon-
ian manni einum morfínbasann.
Þetta var sterklegur maður, með
breiðar axlir og strengdan kvið.
Eins og hnefaleikari í léttvigtar-
flokki. Þetta var Pierre Trigano,
félagi Levonians og bezti vinur.
Hann var meðlimur eiturlyfja-
hringsins í Marseille, sem hafði
gert pöntun þessa.
Levonian sneri síðan aftur til
bifreiðar yfirlögregluþjónsins. Og
þegar þeir óku af stað aftur, bauð
han Abou Salim upp á glas í næt-
urklúbbi. Yfirlögregluþjónninn
skildi, að Levonian vildi hafa auga
með honum, þangað til hægt væri
að flytja morfínbasann burt úr
verzluninni á nýjan felustað. Þetta
var hin venjulega aðferð, og því
tók hann boðinu.
Trigano var búinn að koma mor-
fínbasanum til lítils húss í ar-
menska borgarhverfinu, áður en
mennirnir tveir voru komnir til
næturklúbbsins. Þar skipti hann
morfínbasanum í fernt, pakkaði
honum í vatnsheldar umbúiLr og
batt fiskilínu utan um. tívo xlutti
hann varninginn niður að höfn og
út í árabát, sem var með utanborðs-
vél. Er dimmt var orðið fór hann
svo með leynd í bát þessum út úr
höfninni í Beirut út að frönsku
vöruflutningaskipi, sem lá fyrir
akkerum mílu vegar úti fyrir norð-
urútjaðri borgarinnar. í fyrstu gat
Trigano aðeins greint tvö ljós í
siglutré og grænt ljós á stjórnborða,
en þegar hann nálgaðist skipið,
kom hann auga á daufan bjarma
í einu kýrauganu. Hann drap á vél-
inni og gaf nokkur stutt og löng
merki með vasaljósi sínu.
Hann fékk svarmerki frá kýr-
auganu. Þá reri Trigano upp að
hlið vöruflutningaskipsins. Þegar
hann lagðist við hlið þess, opnaðist
lúkugat í skipshliðinni fyrir ofan
hann. Svo var kaðall látinn síga
niður í árabátinn. Trigano greip í
hann og batt hann vendilega utan
um pakka sína. Síðan kippti hann
tvisvar í kaðalinn. Varningurinn
var svo dreginn upp og hvarf um
borð í skipið.
Á vöruflutningaskipum og far-
þegaskipum af meðalstærð eru
álitnir vera um 30.000 staðir, þar
sem unnt er að fela eiturlyf. Toll-
verðir og sérfræðingar lögregl-
unnar, sem hafa beint allri atorku