Úrval - 01.10.1968, Qupperneq 117
LIFANDI DAUÐI TIL SÖLU
115
Frakklands er eins konar vegamót
sjóleiðanna, sem liggja þangað frá
Asíu, Austurlöndum nær, Afríku,
Suður-Ameríku, Bandaríkjunum og
Kanada. Skip, birgðir og sjómenn
streyma til hafnarinnar frá öllum
hlutum heims, og smám saman
hafa hin risavöxnu hafnarhverfi
hennar orðið hinn ákj ósanlegasti
felustaður glæpamanna, paradís
smyglara, markaður fyrir falsaða
peninga, aðsetursstaður hvítrar
þrælasölu, vændis og fjárhættu-
spilamennsku og markaður fyrir
smyglvarning hvaðanæva að úr
heiminum.
Það er einn hópur manna í Mar-
seille, sem ræður lögum og lofum,
hvað alla þessa glæpastarfsemi
snertir. Það eru Korsíkumennirnir.
í rauninni er Marseille stundum
lýst sem stærstu borg eyjarinnar
Korsíku, því að það búa ef til vill
fjórum sinnum fleiri Xorsíkubúar
í þessari frönsku hafnarborg en í
Bastia, stærstu borg Korsíku sjálfr-
ar. Þeir flykktust til franska meg-
inlandsins, vegna þess að eyjan var
of fátæk til þess að geta veitt þeim
lífsviðurværi. En þeir hafa samt
aldrei álitið sig vera Frakka. Venju-
legur Korsíkubúi í Marseille býr
þar oft öll sín fullorðinsár, en hann
snýr samt alltaf til Korsíku, þegar
um er að ræða augnablik, sem
tákna tímamót í lífi hans. Þar geng-
ur hann í hjónaband, eiginkona
hans fer þangað til þess að ala
börnin, þar sezt hann í helgan stein,
þegar hann er hættur störfum, og
þar deyr hann. En að öðru leyti
býr hann í Marseille sem meðlimur
stoltrar klíku, sem einkennist af
skilyrðislausri hollustu meðlima
sinna.
Því er eins farið með Korsíku-
búana og önnur minnihlutabrot
innflytjenda. Þeim hafa aðeins
til boða lægstu og sóðalegustu störf-
in, þegar þeir hafa komið til hinn-
ar miklu hafnarborgar í fyrsta sinni.
Auðveldast var að fá störf á sjón-
um. En glæpirnir veiítu stærstu
tækifærin. Og eiturlyfin buðu upp
á mestan gróða. Þegar tímar liðu
fram, tókst þeim að ná sterkum
tökum á allri skipulagðri glæpa-
starfsemi í borginni og algerðri ein-
okun, hvað eiturlyfin snerti.
Sá fjöldi Korsíkubúa, sem lagði
stund á glæpastarfsemi, var auð-
vitað lítið brot þeirra tugþúsunda
eyjarskeggja, sem fluttust til
franska meginlandsins. En þessir
fáu, sem lögðu út á þá bvaut, mynd-
uðu bræðrafélag, sem kallað var
„Union Corse“ (Korsíkufélagið),
sem er hliðstæða Mafíunnar í und-
irheimum Sikileyjar. Því er eins
farið með Korsíkumennina og
frændur þeirra, Sikileyingana, að
þeir voru þögulir sem gröfin, hvað
alla þá snerti, er standa utan við
bræðralagið, enda er þeim, sem
leysir frá skjóðunni, dauðinn vís.
Þeir háðu einnig „styrjaldir" um
áhrifasvæði og feng. (Eitt sinn voru
35 menn drepnir í götufyrirsátrum
vegna skipsfarms af stolnum banda-
rískum vindlingum, sem deilur
stóðu um). En smám saman hafa
slíkar deilur lagzt niður. Þær hafa
orðið að víkja fyrir hinni nýju
stefnu innan hinnar skipulögðu
glæpastarfsemi, samningum og fyr-
irfram ákveðnu skipulagi.