Úrval - 01.10.1968, Page 123
LIFANDI DAUÐI TIL SÖLU
121
reiðinni, svo að það var hægt að
aka henni burt tafarlaust. Hann
sá jafnvel ekki Guerin stíga upp
í bifreiðina og aka henni burt. Eng-
inn í eiturlyfjahringnum í Mar-
seille, jafnvel ekki Benucci sjálf-
ur, vissi í raun og veru, hvar rann-
söknarstofa Paoli var. Og sömu
varúðarráðstafanir yrðu viðhafðar,
þegar fullunna heroinið yrði til-
búið til afhendingar.
Þeir Paoli og Guerin báru pakk-
ana úr bílskúrnum niður í kjall-
ara sveitabýlisins. Þar var rann-
sóknarstofan, stórt, hvítt herbergi,
vel lýst og búið úrvalstækjum,
margföldum gatbrennurum, gler-
hylkjum sem voru blöðrulaga, og
rörum, sogdælum, gljáandi vöskum,
bökkum og geymsluhillum, hlöðn-
um kemiskum efnum. Hinn raun-
verulega undirstaða frammistöðu
og frægðar Paoli grundvallaðist
ekki síður á þessu herbergi en
leikni hans sjálfs. Flestar aðlrar
rannsóknarstofur, sem voru notað-
ar til ólöglegrar heroinvinnslu,
voru aðeins til bráðabirgða. Þeim
hafði verið hróflað upp í tómum
húsum úti á landsbyggðinni, í hús-
vögnum og á bátum. Og svo voru
þær yfirgefnar, þegar búið var að
vinna úr einni vissri sendingu. Pa-
oli kom fram með þá snjöllu nýj-
ung, að koma á laggirnar varan-
legri, fullkominni rannsóknarstofu,
þar sem hann gæti unnið óáreittur
til frambúðar með beztu fáanlegu
tækjum og þannig framleitt þá
beztu vöru, sem hugsazt gat.
Paoli hófst nú handa við vinn-
una. Hann tók umbúðirnar utan
af pökkunum fjórum og vó mor-
fínbasann. Hann lagði plastpokana
með brúna duftinu í á vogina hvern
á eftir öðrum og kallaði upp mjög
nákvæma vigt þeirra. Guerin lagði
tölurnar saman á blaði. Ef magn-
ið næmi minna en 50 kílóum, yrði
Benucci skýrt frá því, áðuir en
vinnslan hæfist. En næmi saman-
lögð þyngd meira en 50 kílóum,
mundi það umframmagn bætast við
einkabirgðir Paoli. Þar yrði bara
um að ræða launauppbót, sem hin-
ar nákvæmu vogir hans hefðu rétti-
lega unnið til. Hann gat auðveld-
iega fundið kaupanda í Marseille.
Paoli athugaði gæði morfínbas-
ans og hnussaði fyrirlitlega. Það
fór eins^og hann hafði grunað. Það
yrði að hreinsa morfínbasann að
nýju. Þar var aðeins um einfalda
aðferð að ræða. Hann blandaði ace-
tone saman við morfínbasann í
stórum, emailleruðum skálum og
lét blönduna standa svolitla stund.
Að því búnu síaði hann hana.
Þessi síun tæki allt of langan
tíma, ef ekki væri neytt neinna sér-
stakra bragða. Þá. þyríti Paoli að
bíða, meðan vökvinn lak í dropa-
tali í gegnum pappírsblað niður í
flösku. En Paoli notaði sogdælu til
þess að hraða þessari síun, og svo
þurrkaði hann hina endurhreins-
uðu upplausn er þannig fékkst, í
ofni, sem var sérstaklega til þess
gerður.
Paoli var nú reiðubúinn að hefja
hina raunverulegu vinnslu, þegar
hann hafði nú fengið í hendur vel
hreina morfínkristalla. Hin raun-
verulega ummyndun morfínbasans
í heroin er ekki sérstaklega erfið
fyrir þjálfaðan efnafræðing, sem