Úrval - 01.10.1968, Side 124
122
ÚRVAL
hefur réttu tækin. En maður, sem
þekkir ekki að fullu eiginleika og
viðbrögð vissra kemiskra efna, sem
notuð eru, getur sprengt sjálfan
sig í loft upp, reyni hann að fram-
leiða heroin. Allmargir viðvaning-
ar á þessu sviði láta lífið í spreng-
ingum í leynirannsóknarstofum í
Tyrklandi, Líbanon og Mexíkó ár
hvert.
Vinnsluaðferð þessi er kölluð
„acetylation".* Moirfínið er fyrst
meðhöndlað með acetic anhydríði,
og svo er það hitað við 85° á Cel-
sius í 6 klukkutíma í tvísuðutæki.
Acetic anhydríð er litlaus, römm
og mjög tærandi sýra, sem með-
höndla verður mjög varlega. Paoli
hafði sett lofthreinsunartæki á alla
gluggana í rannsóknarstofunni, og
hann var með skurðlæknishanzka
á höndunum og skurðlæknisgrímu
fyrir vitunum. En það var samt
nauðsynlegt að venjast lyktinni af
sýrunni, því að annars var hún
óbærileg.
Paoli gat „soðið' fjórar blöðru-
flöskur (glerhylki) af morfíni og
sýru í einu. Ofan á hverju gler-
hylki var glerrör í ótal beygjum,
svo að gufan, sem myndaðist við
suðuna, gæti þétzt þar. í glerhylkj-
um þessum voru líka hitamælar,
svo að hægt væri að ráða hita-
stigi blöndunnar og halda því stöð-
ugt í 85°, eftir því sem nokkur tök
voru á. Paoli vissi, að það mátti að-
eins muna 5 hitastigum, þ.e. hita-
stigið mátti alls ekki fara niður
* Höfundurinn hefur viljandi sleppt
vissum efnafræðilegum þáttum vinnsl
v.nnar í eftirfarandi lýsmgu.
fyrir 80°, eða upp fyrir 90°. Færi
hitastigið niður fyrir 80°, stöðvað-
ist efnabreyting sú, sem nefnist
„acetylation". En færi það upp fyr-
ir 90°, eyðilegðist morfínið. Við
100°, þ.e. suðumark, var svo hætta
á sprengingu. Þar að auki varð
Paoli að gæta þess að forðast guf-
urnar, sem stigu upp af blöndunni.
Þær voru eitraðar og mjög eld-
fimar.
Nú hófst Paoli handa við heroin-
vinnsluna, sem er seinlegt og ó-
þægilegt starf. Þegar blandan var
tilbúin eftir 6 tíma, voru gler-
hylkin látin kólna. Nú var hann
búinn að vinna óhreinsað heroin í
upplausn. Vinnslunni var svo hald-
ið áfram næsta dag. Hann síaði
efnið nokkrum sinnum, þvoði það
og lét það botnfalla, þangað til
hann hafði framleitt fíngert, mjúkt,
létt og snjóhvítt duft, bezta hero-
in, sem fáanlegt var, hversu mik-
ið fé sem í boði væri.
Á 4 dögum gat Paoli framleitt
116 kíló eða 232 pund af heroini,
enda vann hann alls ekki meira
en 4 daga í viku. Paoli var varkár
maður. Hann vissi, að hann þarfn-
aðist hvíldar hina 3 daga vikunn-
ar. Hann vissi, að hann þurfti að
losna við eiturefnin, sem safnazt
höfðu saman í líkama hans. Hann
vissi, að hann gat ekki íorðazt að
fullu allar eiturgufurnar þrátt fyr-
ir rykgrímuna. Hann var að vísu
með hanzka, en sýrurnar, sem hann
þurfti að nota, átu sig samt inn í
fingurgóma hans, og hann átti það
stöðugt á hættu, að hann fengi í-
gerðir.
Jósef Paoli fór því alveg sér-