Úrval - 01.10.1968, Side 127
LIFANDI DAUÐI TIL SOLU
125
York og sá sjálfur um alla heroin-
kaupsamninga hans. Biani flaug
því tafarlaust til Marseille, þegar
Benucci sendi honum skeyti og bað
hann um að koma til fundar við
sig.
Benucci kynnti hinn nýja skjól-
stæðing sinn fyrir Biani við kvöld-
verðinn og kom með lokkandi til-
boð. Hann lýsti yfir því, að Leon
Levonian gæti afgreitt ótakmark-
aðar birgðir af heroini af beztu
tegund beint til New York og yrði
verðið 12.500 dollarar kílóið.
Biani tók boðinu án nokkurs hiks.
Áður hafði hann neyðzt til þess
að kaupa heroin í gegnum Mafíu-
klíkuna í Montreol í Kanada fyrir
e.iturlyfj ahring sinn, en hún fékk
birgðir sínar frá Benucci. Verð
hennar var miklu hærra, eða frá
16.000 til 18.000 dollarar kílóið.
Benucci skýrði frá því, að starf-
semi Levonians í New York ætti
að vera fólgin í stofnun og rekstri
nýs útibús Marseillehringsins, þótt
hinar venjulegu sendingar yrðu
sendar til Montreal sem fyrrum.
Hann sagði, að Biani gæti þannig
aukið sölu sína, þar eð hann fengi
nú nýjar og ódýrari birgðir. Le-
vonian samþykkti að koma heroin-
inu inn í Bandaríkjunum á eigin
ábyrgð og selja engum öðrum en
Biani.
Samningurinn var mjög ýtarleg-
ur, þótt hann væri hvergi skrifað-
ur. Levonian var tryggt það verð,
sem hann vildi fá fyrir eigið hero-
in, 10.000 dollarar fyrir kílóið. Hluti
Benucci yrði 2.500 dollarar kílóið
fyrir að útvega þennan fasta við-
skiptavin. Biani samþykkti að
borga í reiðufé við afhendingu, og
þeir samþykktu allir þrír að halda
þessu samkomulagi leyndu fyrir
öllum samstarfsmönnum sínum.
Þegar franska gufuskipið lagði úr
höfn í Le Havre nokkrum vikum
síðar, fylgdi Levonian Toros Mal-
ik og Simcabifreiðinni að skipsfjöl
og sá um, að þau kæmust um borð
heilu og höldnu. Svo flaug hann
til Ameríku, þar sem Trigano beið
hans.
SKÁPUR I KEWGÖRÐUM.
Risavaxna, franska gufuskipið,
sem leiðbeint var af þrem dráttar-
bátum, beygði fyrir endann á
bryggjunni við Norðurá í New
York og lagðist upp að. Uppi á
bryggjunni stóðu þeir Trigano og
Levonian í allri mannþrönginni.
Ungi Armeníumaðurinn var alls ó-
hræddur, en samt gat hann ekki
bælt niður taugaspennuna, sem
hann fann, að var sífellt að vaxa
innra með honum. Hann vissi, að
næstu klukkustundir yrðu hættu-
legustu stundirnar, allt frá því
augnabliki er hann byrjaði að semja
um sendingu þessa í Istanbul.
En allt fór fram samkvæmt á-
ætlun. Trigano hitti Toros Malik
á bryggjunni og beið, á meðan
verið var að skipa bláu Simca-
bifreiðinni í land og koma henni
í gegnum tollskoðun. Síðan ók hann
henni að gistihúsinu, sem Malik
ætlaði að dvelja á. Þar borgaði
Trigano honum 200 dollara fyrir
aðstoðina og ók burt í bifreiðinni.
Levonian ók á eftir honum í bif-
reið Triganos og gætti þess að missa
ekki sjónar á Simcabifreiðinni. Þeir