Úrval - 01.10.1968, Qupperneq 130
128
ÚRVAL
usviðarborðum að innan með leyfi
húseiganda. Hann sagðist þurfa að
gera það til þess að vernda betur
dýru, frönsku fötin sín. Og út-
skotið hvarf við þessar endurbæt-
ur. En Trigano hafði sett merki í
báða enda stangarinnar, sem herða-
trén voru hengd á, þannig að væri
stönginni snúið hálfan hring, var
hægt að ýta henni hálfan þuml-
ung inn í vinstri vegginn, og um
leið losnaði sedrusviðarborð hægra
megin. Þá var hægt að ná borð-
unum í efsta þriðjung hægri hlið-
arinnar burt, og þá blasti útskotið
við.
En þegar stöngin var á sínum
stað og fest í báða enda við borð-
in, virtist hægri veggurinn vera
alveg heill eins og sá vinstri. Rifan
milli sedrusviðarborðanna var hul-
in lista, sem náði yfir þrjár hliðar
skápsins og hélt uppi hattahillu.
Þarna var um fyrirtaks trésmíði
að ræða og jafnframt fyrirtaks
felustað.
Félagarnir tveir frá Marseille
glöddust yfir velgengni sinni þetta
kvöld í íbúðinni í New York. Þeir
tíndu heroinpokana upp úr tösk-
unum og töldu þá vandlega eins
og nirflar væru að telja gull. Síð-
an földu þeir þá í leyniútskotinu
í skápnum. Levonian var nú til-
búinn til þess að hefja viðskipti
í Ameríku.
Framhald í næsta blaði.
Rotchild baron ságði, að Það væru aðeins tveir menn i heiminum,
sem skildu i rauninni eðli og hlutverk gullsins og greiðslujöfnuða
í heimsviðskiptunum, annar væri aðalbankastjóri Frakklandsbanka
og hinn lítt þekktur bankamaður við Englandsbanka. „En þvi miður
eru þeir ekki á sama miáli“, bætti hann við.
Harvey Segcd.
Ég var staddur á bifreiðasýningunni í Coliseum i New York, og þar
var margt um manninn. Ég hélt því dauðahaldi í höndina á henni litlu
dóttur minni. Skyndilega rakst stór maður á hana. Hann sneri sér að
mér og baðst afsökunar með þessum orðum, ég sá ekki, að þér voruð
með aftanivagn."
H. P.
Fred Allen gamanieikari sagt oft, að það væri mjög slæmt að byrgja
niðri í sér hláturinn. Hann sagði, að hann þrýstist niður á við og
breikkaði mjaðmirnar.
Carl Reiner.
En hve lífið væri ánægjulegt, ef fólk, sem á peninga, notaði þá á
þann hátt, sem fólk, sem á ekki peninga, mundi nota þá, ef Það ætti
peninga.
Roland Dorgelés.