Úrval - 01.04.1973, Page 123

Úrval - 01.04.1973, Page 123
MANSTU EFTIR HREPPASULTINUM . . . . sem flutzt höföu burt úr Hreppunum, komust svo að orði hver við annan, er þeir minntust fyrri ævi sinnar: „Manstu eftir Hreppasultinum á vorin?” A siðari hluta þorra var stundum farið út á Eyrarbakka til þess að sækja nýja soðningu. Það var kallað að fara slógferð. Þá var nýr fiskur til miðdegismatar I nokkurn tima, eftir að komið var úr slógferðinni. önnur slógferð á Eyrarbakka var stundum gerð nálægt sumarmálum. Um lokin var oft farin svokölluð lokaferð út i Hafnir og þangað sótt heilagfiski. Þá batnaði i ári á Hreppunum. Siðan var fardagaferðin farin suður i Reykjavik til þess að sækja grásleppu og kornmat. Um Jónsmessu var gerð þangað Jónsmessuferðin. Þá voru sjó- mennirnir sóttir og hlutur þeirra, sem hertur var. Loks var lagt upp með ullina á lestum til Reykjavikur. Þá var keyptur kornmatur og kaffi og sykur og ýmis annar kaupstaðavarningur. Kornmatur, sem keyptur var i austur- bænum, minnir mig vera tvær tunnur af rúgi, ein af bankabyggi og ein tunna af hálfgrjónum. Auk þess var oft keypt hálftunna af baunum. Rúgurinn var bæði hafður i kökur og til útáláts. Hrisgrjón, sem sumir kölluðu hrisin- grjón, voru aðeins keypt i veizlu- grauta, og voru þeir af ýmsum nefndir hrisingrjónagrautar. Á túnslætti var fyrsta máltiðin étin klukkan sjö á morgnana. Hún var harðfiskur og kaka með smjöri, ein kaka á mann. A eftir var drukkið kaffi með kandiskörtu á stærð við hálfan högginsykurmola. I kaffi var alltaf hafður rjómi. Klukkan tólf var skyr með mjólk út á. Klukkan fjögur var étinn miðdegismatur, venjulega hert 121 grásleppa og baunir. A kvöldin, er komið var heim, var skyrhræringur með mjólk útá. A engjaslætti var fyrstu máltiðar neytt milli klukkan sjö og átta. Það var skyr með litlum mjólkurdropa út á og kaffi á eftir með kandlsmola. Nálægt klukkan tiu var morgun- verður, oftast grásleppa og skyr á eftir með mjólkurdreitli út á. Miðdegismatur var étinn kiukkan fjögur til fimm, aftur hert grásleppa meö baunum. Á kvöldin var skyr með mjólkurlögg. Oft voru hafðir þorsk- hausar af Eyrarbakka, ágætlega verkaðir, I staðinn fyrir grásleppuna. Fjallagrös voru nokkuð höfð i vatns- grauta, sem hrærðir voru saman við skyr. Þau voru lika einstöku sinnum látin I mjólkurgrauta, og þeir grautar þóttu okkur beztir. Hestur af blautum grösum var talinn jafngilda heiltunnu af rúgi. Haustið var bezti matartimi ársins. Þá var sláturtiöin. Fyrsta máltiðin, oft kjötsúpa og rófur, var étin um klukkan tiu á morgnana. Miðdegismatur var snæddur klukkan tvö til þrjú. Hann var oft þorskhausar eða harðfiskur og bræðingur við. En um klukkan sex til sjö á kvöldin var heitur blóðmör og rófur og slátursoð drukkið með. Kartöflur og söl voru höfð með harð- fiskinum. Hjá fóstra minum voru venjulega saltaðar tvær heiltunnur af kjöti og entust fram yfir sumarmál. Hangikjöt var aðeins til matar á jólum. Þá var skammtað svo riflega, að mörgum entist skammturinn fram á þrettánda. Karlmenn, sem náð höfðu fermingu, fengu langlegg úr sauðalæri, en yngri piltar liði og bóglegg. Auk þess fengu allir feitt kjöt úr sauðarsíðu.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.