Úrval - 01.05.1976, Page 8
6
URVAL
slíta barnsskónum og býr þannig yfír
möguleikum til kviknunar lífs?
Síðastnefnda tilgátan virðist lík-
legri, því að þróunarstig reikistjörnu
virðist stjórnast af nálægð hennar við
sólu og tiltölulegri stærð hennar.
Venus er til dæmis svipuð að stærði
og jörðin og er nær sólu. Sólarhitinn
og geislavirk efni hafa aukið hitastig
hennar að því marki, að vatnið
hefur horfið, kolefnissambönd, sem
eru nauðsynleg fyrir myndun og
viðhald lífs, hafa leystst í sundur og
þétt gufuhvolf eitraðra lofttegunda
hefur myndast og gert Venus
óbyggilega fyrir líf í þeirri mynd, sem
við þekkjum. (Margir vísindamenn
álíta, að jörðin stefni einnig í sömu
átt).
Mars er á hinn bóginn minni en
jörðin og Venus og lengra frá sólu.
Þar af leiðandi tæki það gufuhvolf
hennar lengri tíma að hitna. Hin
fjölmörgu eldfjöll hennar, gljúfur
hennar og dalir og hinar sléttu
hraunhásléttur, þar sem engir gígar
eru, styðja þá skoðun, að hún sé
einmitt að komast á stig jarðfræði-
legrar ókyrrðar og starfsemi og
kannske einnig myndunar gufu-
hvolfs. Ef Mars er aftur á móti að
deyja út, kunna skurðir hennar að
vera steingerðar leifar frá eldra skeiði,
sem var jafnframt meira blómaskeið.
Sé Mars aftur á móti enn í sköpun,
kunna skurðirnir að vera lífrænar
útungunarstöðvar fyrir núverandi líf-
verur og lífverur framtíðarinnar.
Lokaþáttur ferðarinnar, og jafn-
framt sá mest spennandi, á að
hefjast 4. júlí. Lendingarstaður þinn
hefur þá verið valinn, en það er
dalur, sem myndast hefur fyrir áhrif
vatns norðan Valles Marineris, stór-
fenglegs 4800 km langs skurðar, sem
liggur yfír miðbaug reikistjörnunnar.
Samkvæmt skipun frá jörðu munu
sprengiboltar aðskilja geimskipin
tvö. Risavaxnar fjaðrir skjótast út á
við, og Landerinn, sem er enn
innsiglaður inni í „loftskel” sinni,
svífur burt frá móðurskipinu. Það
heyrist hávaði í litlu hemlunartækj-
unum. Geimfarartækið hægir á sér
og fellur í bogmynduðum, 25.600
km löngum sveig í áttina til yfir-
borðsins.
Fimm klukkustundum eftir að-
skilnað geimskipanna fellurðu niður í
fíngert gufuhvolf Mars á 13440 km
hraða á klukkustund. Nú gerist allt
með miklum hraða, hver atburður-
inn á fætur öðrum. Þegar hraðinn er
kominn niðurí tvöfaldan hljóðhraða,
opnast rúmlega 15 m fallhlíf (15,24
m). Neðri helmingur „loftskeljar-
innar” opnast og svífur burt. Fætur
Landersins, sem nú hafa komið í ljós,
rétta úr sér og festast 1 vissri stöðu.
Þú þeytist áfram rétt yfir yfirborði
Mars, fram hjá hinu risavaxna flykki,
Nix Olympica, eldfjalli, sem er á
stærð við Missourifylki. Tindur þess
er ótrúlega hár, eða 24 km. Hinir
21300 metra háu tindar Tharsisfjalla
gnæva til himins á hægri hönd, og
handan þeirra má greina hinar