Úrval - 01.05.1976, Page 17

Úrval - 01.05.1976, Page 17
MAÐURINN SEM LAS HUGSANIR 15 þangað kom ég til sýningahalds árið 1948. Þegar fyrsta daginn fann ég allt í einu úti á götu, hvernig illur grunur greip mig. Ég get ekki heldur nú lýst því hvernig þetta var, en einhver óákveðinn grunur fór að naga mig að innan, og furðusterk löngun til að halda þegar á brott. Þetta ágerðist með hverri mínútu og í fyrsta sinn á ævinni aflýsti ég sýningu og hélt strax til Moskvu. Að tveim dögum liðnum lagði jarðskjálfti Asjkhabad í rúst.” í 75 ár veiktist Wolf Messing aldrei, ef undanskilinn er einn smávægilegur uppskurður. Hann fann aldrei til höfuðverkjar, og hann átti auðvelt með að losa aðra við höfuðverk með því að leggja fingur sína að gagnaugum þeirra. Meða yfirskilvitlegum (ESP) hæfileikum sínum gat Messing fundið hvaðan veikindi annars manns stöfuðu. Hann þoldi ekki þmmuveður. í þrumuveðrum greip hann sterkur uggur. Má vera að eitthvða samband sé á milli þessa ástands og þeirrar staðhæfíngar nokkurra hugskeyta- sendara, að þeir hafi orðið fyrir losti þegar Messing kom við þá. Og við þá kvörtun Messings sjálfs, að hann finni fyrir oddi nagla sem reknir em í vegg. Alla ævi hafði Wolf Messing ekki tíma eða löngun, til að leyfa læknum að skoða sig ítarlega. Reyndar leyfði hann einu sinni kvenlækni einum í Belaja Tserkov, sem hafði horft á sýningu hjá honum, að skoða sig lauslega. Það vakti furðu þessa læknis að í höfði og brjósti Messings gætti ekki saman hitaskyns og í öðmm hluta líkama hans. TILGÁTUR. Enn hafa ekki fundist vísindalegar skýringar á flestum þeim ESP-fyrir- bæmm sem Wolf Messing og aðrir menn, sem svipuðum gáfum em gæddir hafa sýnt. Menn bera fram tilgátur um að til séu efnislegar eindir sem taki þátt í sálrænum ferlum, kalla þær „mentíona” eða „takióna” og fari þær hraðar en ljósið, aðrir hallast að bylgjuhreyf- ingum eða rafsegulsviði, eða geta sér til um ,,bíosvið” eða „psikhosvið”. Með öðrum orðum: tilgátusviðið er víðfemt. Síðasta spurning mín til Messings laut að framtíðinni. „Hvernig skýrið þér hæfileika yðar til að sjá atburði fyrir? Hvernig gerist þetta? ,,Með einbeitingu viljans sé ég skyndilega fyrir mér endanlega nið- urstöðu atburða og hleyp þá yfir alla röð þeirra. Þetta kalla ég ,,beina vitneskju” og sé ekkert dularfullt við þetta. Framtíðin myndast úr fortlð og nútíð og á milli þeirra em til einhver „tenglamódel”. En við höfum enn óráðnar hugmyndir um eðli tímans, um tengsli hans við rúm, við fortíð, nútíð og framtíð, og það er af þeim sökum að við fáum enn sem komið er ekki skilið hvernig þessi „beina vitneskja” virkar.” ★
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.