Úrval - 01.05.1976, Síða 20
18
Reddick og börn hans, Davíð og
Sharon, ákváðu að ganga frá Para-
dísargistihúsinu, sem erí 1652 metra
hæð, upp til Muirbækistöðvanna,
sem eru í 3048 metra hæð. Frú
Reddick, sem hafði meiðst í mjöðm,
ætlaði að halda kyrru fyrir á tjald-
búðasvæðinu við Cougarklett með
hin börnin tvö.
Klukkan 8 að morgni lögðu þau
Sharon, Davíð og faðir þeirra af stað
frá Paradísargistihúsinu, og voru þau
fyrsti gönguhópurinn, sem lagði af
stað þann daginn. Það var um 2,5
m snjólag á gönguslóðinni. (Snjó-
koman á Rainierfjalli er alveg ótrú-
lega mikil: Svæðið við Paradísar-
gistihúsið á heimsmet í þeim efnum,
en þar snjóaði um 25 m einn vetur-
inn). Þau gengu eftir troðinni slóð,
sem var merkt með litlum veifum,
þundnum á staura. Vatnselgur rann
víða yfir slóðina. Það var merki um,
að vorþíðan væri komin. Hitinn var
3,3 stig á Celsius og fór hækkandi.
Reddick hafði krafíst þess, að börnin
væru klædd þykkum og hlýjum fatn-
aði, ef ske kynni, að stormur skylli
á, en brátt urðu þau að fara úr þykku
ytri jökkunum, sem þau bundu síðan
um mitti sér.
En veðrið á Rainierfíalli er þekkt
fyrir óstöðugleika. Aðeins einni
klukkustundu eftir að Reddickfjöl-
skyldan lagði af stað, komu þjóð-
garðsverðir við Paradísargistihúsið
auga á þunnan skýjabakka hátt uppi
í fjallinu, og því vöruðu þeir 5 manna
hóp, sem varí þann veginn að leggja
(JRVAL
af stað, við því, að slíkur skýjabakki
boðaði oft storm.
Reddick og börn hans gátu ekki
séð þennan skýjabakka, sem var
nálægt fíallstindinum, frá þeim stað,
sem þau voru stödd á, en þau voru
nú að klöngrast yfír Nisquallyskrið-
jökulinn. Við Útsýnishjalla stönsuðu
þau til þess að njóta úsýnisins yfir
hina snæviþöktu tinda Cascadefíall-
garðsins, sem blöstu við í röð, líkt
og risaperlur, eins langt og augað
eygði. Sharon safnaði saman hrein-
um snjó til þess að bræða, svo að þau
gætu eldað súpu á litla ferðaprím-
usnum sínum, og Davíð og faðir hans
tíndu súkkulaðipakka, samlokur og
kex upp úr bakpokum sínum. Eftir
stutta hvíld héldu þau aftur út á
slóðina, sem gerðist nú smám saman
brattari.
Um hádegi náði 5 manna göngu-
flokkurinn þeim og skýrði þeim frá
veðurspá þjóðgarðsvarðanna. En
það var styttra til Muirbækistöðv-
anna en Paradísargistihússins, og því
ákvað Reddick að halda áfram upp í
móti. Hinn flokkurinn hélt síðan af
slóð þeirra og fór inn á aðra slóð.
Tveim tímum síðar kom Davíð
auga á þykkan skýjabakka nálægt
tindi Adamsfíalla, sem er gamalt
eldfjall þar í grenndinni. Og að
nokkrum mlnútum liðnum tók ský
að bera fyrir sólu og Reddick fór að
greikka sporið. Sharon skynjaði kvíða
og óróleika föður síns. Vindhviður
fóru brátt að þyrla upp snjónum
umhverfis þau, og þau Sharon og