Úrval - 01.05.1976, Qupperneq 25
ÞOLRAUNÁ RAINIERFJALLI
um, minnast hans vel. Þjóðgarðs-
verðirnir nota hann fyrir sígilda
viðvörun til náttúruunnenda til að
undirstrika þörfina á að bera ætíð
tilhlýðilega virðingu fyrir afli og ofsa
náttúruaflanna.
Þau Sharon og Davíð Reddick eru
nú bæði við háskólann í Seattle, en
þaðan er hægt að sjá Rainierfjall í
23
rúmlega 100 km fjarlægð, þegar
skyggni er gott. Þeim verður oft
hugsað til föður síns, „Pabbi fórnaði
lífi sínu fyrir okkur,” segir Sharon.
„Þegar ég nú sé Rainierfjall glitrandi
og glóandi þarna í fjarska, fínnst mér
sem það sé sérstakt minnismerki,
reist honum til heiðurs.”
★
NÝ TEGUND SILKIORMA.
Prófessor Nikolai Sinitskí við landbúnaðarháskólann í sovétlýð-
veldinu Ukrainu hefur ræktað nýjan stofn silkiorma, sem lifa á blöðum
af eik og fleiri trjátegundum. Talið er að fimm tonnum af
eikarlaufum, sem venjulega er brennt, þegar tréð er fellt, megi breyta í
eitt tonn af silkiþræði, sem auk þess er í hærra gæðaflokki heldur en sá
silkiþráður, sem venjulegir silkiormar, sem lifa á mórberjablöðum
framleiða.
Þessi nýi silkiormur kom upphaflega frá Kóreu og Norður-Indlandi
og hefur það tekið 20 ár að aðlaga hann aðstæðum í miðhéruðum
Rússlands.
BLINDIR í SOVÉTRÍKJUNUM.
I Sovétríkjunum hefur verið gerð skrá yfir 300 mismunandi störf,
sem hægt er að bjóða blindu fólki. Geta menn m.a. lært til starfa sem
vélgæslumenn, tölvuforritarar eða kennarar. Kom þetta fram í skýrslu,
sem formaður blindrasamtakanna í Rússneska sambandslýðveldinu,.
Boris Simin, flutti á ráðstefnu í Moskvu ekki alls fyrir löngu.
Umhyggja þjóðfélagsins fyrir blindum hefst þegar í bernsku. Til em
sérstakir heimavistarskólar fyrir börn með skerta sjón, þar sem
nemendurnir fá venjulega tíu ára skólamenntun og sækja einnig
námskeið í starfsfræðslu.
Þess má einnig geta, að auk þess sem blindir fá sömu laun og aðrir,
þá fá þeir sérstaka blindrastyrki, auk ýmis konar fríðinda s.s. ókeypis
farmiða með opinbemm samgöngutækjum innan byggðarmarkanna
og 50% afslátt á öllum öðmm ferðalögum. Þeir hafa einnig rétt til
dvalar á hvíldar- og hressingarheimilum, ýmist alveg ókeypis eða gegn
vægri greiðslu.