Úrval - 01.05.1976, Qupperneq 34
32
ÚRVAL
mönnum er fær til þess að hafa stjórn
á lífríki hafsins, en það er hin
svonefnda líffræðilega framræsla.
Með því að eyðileggja eðlilega stofna
lítt eftirsóknarverðra tegunda með
ofveiði eða á annan hátt geta menn
jafnframt aukið stórlega vinnslu og
veiðar á næringarríkum og eftirsókn-
arverðum sjávarafurðum. I slíku
tilfelli situr hinn eftirsótti fiskur einn
að þeirri næringu sem er á tilteknum'
slóðum.
Heimshöfin geta orðið mikill nær-
ingargjafi fyrir alla jarðarbúa. Til þess
er nauðsynlegt að tryggja skynsam-
lega hagnýtingu auðæva hafsins á
grundvelli yfírstjórnar fiskveiða.
Nauðsyn ber einnig til að auka
stórlega stjórn á lífríki hinna ýmsu
veiðislóða með því að flytja til
físktegundir og staðfæra stofna, og
auka stórkostlega klak og fiskræktun.
★
MJÖG STERKAR GERVISLAGÆÐAR.
Vefjasérfræðingurinn Dr. L. Lebedev og vefnaðarsérfræðingurinn L.
Plotkin frá Leningrad hafa unnið saman að framleiðslu á
gerviblóðæðum af ýmsum gerðum, en slíkar gervislagæðar eru nú mjög
notaðar af sovéskum skurðlæknum og hafa þær reynst vel. Fyrsti
sjúklingurinn sem fékk ígrædda gervislagæð úr þessu efni lifir enn við
bestu heilsu 15 árum eftir uppskurðinn, sem Dr. Lebedev
framkvæmdi.
„GEIMBÖNINGAR” handa hjartasjOklingum.
Búningar, líkir þeim, sem geimfarar nota, hafa nú verið teknir í
notkun í sambandi við búnað sjúkrabíla í Moskvu. Em sjúklingar sem
þjást af hjartasjúkdómum færðir í þá. Loftbylgjur innan í búningnum
hjálpa hjartanu til þess að knýja blóðið um æðar líkamans, en það gerir
kleift að veita sjúklingnum nauðsynlega hjálp þegar á leiðinni í
sjúkrahúsið. Búningurinn er tengdur tækjabúnað sem gerir fíölþætta
notkun hans mögulega. Menn, sem stunda störf, er hafa í för með sér
langvarandi hreyfíngarleysi, geta einnig notað búninginn, sem er til
mikillar hjálpar við hreyfíörðugleika.
HÚN GEKK.
Organistinn okkar, kona á sextugsaldri lét sig aldrei vanta í kirkjuna
allan veturinn, sem var snjóþungur og veðrasamur, og þó átti hún
heimaí 6 kílómetra fíarlægð frá kirkjunni. Þegar hún var spurð hvernig
hún hefði eiginlega getað mætt svona vel, svaraði hún blátt áfram:
„Þegar bíllinn kemst ekki vegna ófærðar, þá geng ég.”
M. L. E.