Úrval - 01.05.1976, Side 36
34
URVAL
er ekki hægt að nota mikið þar sem
geymsluþol þess er takmarkað nema
geymt sé í nærri lofttæmdum um-
búðum.
Sagt er, að ef til komi muni sparast
um 2000 milljónir á ári í gjaldeyri og
eru þær tölur fengnar með því að
margfalda ársnotkunina sem er um
50.000 tonn með útsöluverði á
kjarnfóðri 40 kr. per kg. Ef slíkur
útreikningur er tekinn gildur, þá er
víst ekki lengi verið að rétta þjóðar-
skútuna við. I fyrsta lagi er innifalið í
verðinu svo sem flutningur, mölun á
korni, blöndun og annar vinnslu-
kostnaður.
I öðru lagi er þess einnig ógetið að
hið svokallað erlenda kjarnfóður er
ekki eingöngu erlent því í fóður-
blöndurnar er notað íslenskt gras-
mjöl, fiskimjöl, kalk, þangmjöl svo
eitthvað sé nefnt. Þegar þessir liðir
hafa venð frádregnir má ætla að
gjaldeyriseyðslan sé um 25 kr. per kg.
Strax er því hægt að lækka þessar
2000 milljónir í 1250 milljónir, en
þar með er ekki allt komið þar sem
ekki er hægt að fóðra alla gripi með
grasmjöli svo sem svín og hænur.
Ekki trúi ég því, að allir vilji leggja
niður eggjaframleiðslu í landinu því
fátt getur komið í hennar stað, nema
þá að hafin yrði tínsla á eggjum frá
villtum fuglum, en ekki er líklegt að
það yrði neitt framtíðar úrræði, því
ekki eru þeir allir 1 náðinni hjá
Búnaðarþingi þessa dagana.
í þriðja lagi á eftir að reikna í þessu
dæmi þá gjaldeyriseyðslu sem á sér
stað í framleiðslu á grasmjöli og segir
mér svo hugur þegar allir þessir liðir
hafa verið teknir með í reikninginn
verði útkoman sú að 2000 milljóna
gjaldeyrissparnaðurinn verði orðinn
að engu. Þó ég hafi hér mótmælt
nokkuð þessum gjaldeyrissparnaði
má ekki líta svo á að ég sé almennt á
móti grasmjölsframleiðslunni því fáar
þjóðir geta státað af betra grasmjöli
en íslendingar. Þrátt fyrir gæðin er
hver fóðureining í grasmjöli mjög dýr
eða um 60 kr. og í graskögglum
rúmar 52 kr., en sá munur liggur í
því að graskögglar eru ódýrari í
framleiðslu. Aftur á móti kostar hver
fóðureiningí maísmjöli kr. 35.00. Til
að brúa þetta bil hefur verið gripið til
þess ráðs að blanda tólg í grasköggl-
ana, sem kostarum 50 kr. per kg., til
þess að auka fóðurgildi þeirra, og
væri því ekki úr vegi að spyrja hvort
ekki væri eðlilegt að gera hið sama
við maísinn og auka þar með
fóðurgildi hans. Ef það reyndist
jafnvel og grasmjölsíblöndun kæmi
talsverður gjaldeyrissparnaður fram.
Ef þessat vangaveltur mínar reynast
réttar væri ekki úr vegi að beina
kröftum okkar og fjármagni að því
að reyna að lækka framleiðslukostnað
á grasmjöli með því að reyna að nýta
verksmiðjurnar betur. Á síðast liðnu
ári tók ti! starfa ný graskögglaverk-
smiðja í Flatey sem kemur til með að
kosta rúmar 200 milljónir og er
afkastageta hennar um 3000 tonn á
ári sem miðast þó aðeins við 3ja
mánaða vinnslutímabil. Afskriftir og