Úrval - 01.05.1976, Qupperneq 37
35
vextir af slíkri verksmiðju eru nálægt
50 milljónir á ári, og sé því deilt á
framleiðsluna kemur í ljós að aðeins
þessir liðir eru um 17 kr. á hvert kg
eða 50% af útsöluverði grasköggla. Á
þessu má sjá að vonlaust er að rekstur
slíkrar verksmiðju borgi sig, því til
glöggvunar hef ég tekið saman
rekstrarkostnað einnar starfandi verk-
smiðju á síðast liðnu ári, með þeirri
breytingu þó, að verksmiðjan sé
byggð í árslok 1975:
pr. kg.
Vinnulaun .................... 8,42
Olía, rafmagn, umbúðir, við-
hald o.fl. í verksmiðju..... 11,35
Ræktun og jarðvinnsla....... 8,12
Annar kostnaður .............. 1,95
Afskriftir og vextir......... 16,62
kr. 46,46
Söluverð grasköggla er 34 kr. per
kg. Raunverulegt tap er því kr. 12,46
per kg. Með 3000 tonna framleiðslu
verður tapið þvl kr. 37.380.000,00 á
ári.
Á þessu sést að það er engin
grundvöllur fyrir byggingu slíkrar
verksmiðju í dag, á þeim forsendum,
sem þær eru reknar á í dag. En þar
með vil ég ekki iáta leggja niður
grasmjölsvinnslu í landinu heldur
reyna að nýta verksmiðjur þær, sem
fyrir eru betur, til að lækka fram-
leiðslukostnaðinn. Þær yrðu í fram-
tíðinni að verða að vera staðsettar ,
þannig, að hægt verði að núta þær til j/
annars en grasmjölsþurrkunar. Sá
möguleiki sem ég hef hugsað mér til
að nýta verksmiðjurnar betur, er í því
fólginn að þurrka skít úr hænsnum
og ef til vill svínum. Víða erlendis,
svo sem í Danmörku er farið að gera
þetta í talsverðum mæli. Þurrkaður
hænsnaskítur er þá notaður til að
fóðra með nautgripi og sauðfé og má
nota hann t.d. sem 40% af kjarnfóð-
urgjöf þegar miðað er við þá reynslu
sem komin er á notkun hans.
Greinilegt er því að geysileg verð-
mæti fara hér forgörðum því flestum'
hænsnabændum verður lítið úr
skítnum og er hann allt að vandamál
hjá mörgum.
Vinnslan ætti að verða mjög
hagkvæm og eru eftirfarandi kostn-
aðartölur um vinnslu skítsins fengnar
miðað við grasmjölsþurrkun. Fram-
leiðslukostnaður er miðaður við 3000
tonna grasmjölsverksmiðju sem rekin
er allt árið.
pr. kg.
Vinnulaun..................... 3,30
olía, rafmagn, viðhald um-
búðir o.fl. í verksmiðju.... 11,35
Flutningskostn. að verksm. . . 4,00
Afskriftir og vextir........... 4,16
kr. 22,81
Söluverð miðað við fóðurgildi er
kr. 30,00. Hagnaður verður því kr.
7,19 per kg. sem mundi skiptast milli
verksmiðju og bónda, þar sem
hráefnis-verð var ekki tekið með í