Úrval - 01.05.1976, Side 43
LEITIN AD GULLSKIPINU A TOCHA
41
og níu ára gamall, en hann var fljótur
að stinga sér fyrir borð og kafa til
botns. En á botninum var í fyrstu
ekkert annað að sjá en fiskgiidru
úr málmi, síðan stóra oliutunnu ög
vírhönk — allt hlutir sem spán-
verjum var ókunnugt um árið 1622.
En svo kom hann auga á tunnugjörð
og byssukúlu af gamalli gerð. Hann
greip kúluna, spyrnti sér upp á yfir-
borðið og hrópaði: ,,Við höfum
fundið það.”
Næst fundu kafararnir stórt akkeri
og nokkrum dögum seinna silfur-
pening, en fengurinn sem um mun-
aði var níu metra löng keðja úr skíra
gulli þar sem hver hlekkur var
næstum þumlungur að lengd en
þyngdin svaraði til ákveðinnar mynt-
einingar í myntkerfí ársins 1622.
Leitinni var haldið áfram næstu
tvö árin og alltaf voru kafararnir
að fínna eitthvað: gullbikar, skeiðar
og diska, bátsmannsblístru úr gulli,
þúsundir silfurpeninga og fáeinar
litlar gullstengur. En þessir hlutir
voru samt ekki sönnun þess að Fisher
hefði fundið Atocha.
En svo var það 4. júlí 1973, að
kafararnir fundu þrjár silfurstangir og
á einni þeirra var talan 4584. Lyon
athugaði farmskrá Atocha og fann
þar skráða silfurstöng með tölunni
4584. Þyngdin var einnig tilgreind
og kom hún nákvæmlega saman við
þyngd fundnu stangarinnar. Þetta
var sönnunin. Þeir höfðu loks fundið
Atocha.
En þar með er ekki sagt að leitar-
menn væm orðnir auðkýfíngar, allra
síst Fisher. Leitin hafði kostað hann
gífurlega mikið fé, hann hafði orðið
að taka lán og lánveitendur heimt-
uðu sinn skerf. Að vísu hafði hann
bjargað miklum verðmætum úr
mörgum skipsflökum allt frá árinu
1964 en það hrökk ekki til. En þó er
krafa alríkisstjórnarinnar um eignar-
rétt á Atocha alvarlegasta áfallið til
þessa. Úrslit í því máli liggja ekki
enn fyrir.
Fisher varð fyrir miklu persónu-
legu áfalli slðastliðið sumar, þegar
sonur hans og tengdadóttir drukkn-
uðu, en þau voru um borð í kafara-
bát, sem hvolfdi og sökk.
Þegar Fisher frétti um slysið sagði
hann: ,,Hafið er voldugt, það hrifsar
til sín fólk og skip.” En skömmu
seinna sendi hann annan bát til að
halda gullleitinni áfram.
Fisher er ekki efnaður maður og
lifir fábrotnu lífi. Hann er enn von-
góður um að geta bjargað öllum
fíársjóðnum úr Atocha, enda þótt
það kunni að taka langan tíma.
★
Vandamál þeirra, sem eru tröllteknir af því að glápa á 21 tommu
sjónvarpsskerminn, er það, að þeir eru nokkurn vegin öruggir með að
safna 50 tommu rassi. G.J.