Úrval - 01.05.1976, Blaðsíða 75
HVÍTAGULL DÝRASH MÁLMUR IHEIMI
73
Eldsneytisgeymirinn er mjög ein-
faldur að allri gerð, því að í honum er
lítið annað en staflar af þunnum
plastflögum sem platínudufti hefur
verið stráð á. Vatnsefni fæst með því
að leiða gas, olíu- eða bensínúða inn í
geyminn. Súrefnið er tekið úr loft-
inu. Þegar gasið fer yfir platínuhvat-
ann á flögunum, myndast rafstraum-
ur sem leiddur er út í venjulegt
rafkerfi. Otbúnaðurinn krefst ekki
neinnar sérstakrar nákvæmni og það
eru ekki neinir hreyfanlegir hlutir
nema rafmagnsvifta til að hreyfa
loftið.
Tækið vinnur hljóðlaust, gefur frá
sér lítinn hita og veldur engri
mengun þar sem í útblæstrinum er
aðeins skaðlaus kolsýra, vatn og loft.
Það ætti að geta unnið árum saman
án viðhalds og framleitt raforku hvar
sem er. En mesti kosturinn er þó
hve reksturinn er hagkvæmur, þar
sem í geyminum eru engin hjól eða
ásar og því engin núningsmótstaða
sem í nútíma orkuverum valda því að
allt að 80 % af eldneytisorkunni fer í
súginn.
Fyrir nokkrum árum var farið að
gera tilraunir með platínu á enn einu
sviði, sem sé til lækninga. Lífeðlis-
fræðingarnir Rosenberg og van Camp
við Michiganháskóla uppgötvuðu, að
innspýting plátínublöndu í illkynja
æxli í músum og rottum hafði þau
óvæntu áhrif að stöðva vöxt æxlisins
eða uppræta það gersamlega í sum-
um tilfellum. Tilraunir sem gerðar
hafa verið í um fjörutíu sjúkrahúsum
í Bandaríkjunum og Englandi hafa
leitt í ljós bætandi áhrif á krabba-
mein í mönnum, einkum gegn
æxlum í þvagrás og vissum tegund-
um af hvítblæði. En þar sem þessi
sérstaka blanda eykur ekki batahorfur
allra sjúklinga og getur valdið eitrun í
nýrum, fara nú fram tilraunir með
aðrar platínublöndur sem eiga að
geta læknað sjúklinginn án skaðlegra
aukaverkana.
Rosenberg heldur því fram, að fá
efni önnur séu eins vænleg til
árangurs og einmitt platínan — að
öllu samanlögðu ekki svo slæm
útkoma fyrir málm, sem eitt sinn var
talinn einskisvirði og enginn vildi
hirða.
★
Sannur föðurlandsvinur er sá sem gleðst yfír kerflnu, þegar hann fær
stöðumælasekt. Bill Vaughan.
Eftir því sem maðurinn eldist, eftir því lengist vegurinn, sem hann
varð að ganga í skólann í æsku. H. H.
Eitt er þó gott við sjálfselskufullt fólk: Það talar ekki um aðra.
V. S.