Úrval - 01.05.1976, Page 82

Úrval - 01.05.1976, Page 82
80 URVAL hann hefði ekki verið einn einasta dag í skólahúsi. Þótt hann lærði að lesa og lítilsháttar að skrifa var stafsetning hans ævinlega langar leiðir trá réttu lagi. Jafnvel John föðurbróðir hans, sem var kennari að atvinnu, varð að viður- kenna að það væri vonlaust verk að kenna stráknum stafsetningu. En Squire Boone lét sér fátt um fínnast: „Látið stelpurnar stafa, Daniel skýtur,” sagði hann. Hann var tólf ára, þegar faðir hans gaf honum riffil. Vopnið varð hans fylginautur þaðan í frá. Honum var jafn eðlilegt að hitta í mark og að draga andann, og þaðan í frá var það hann, sem einkum sá fiölskyldunni fyrir villibráð. 1750 ákvað Squire Boone að yfirgefa Pennsylvaniu, og hélt með fiölskyldu sína suður á bóginn um Cumberland dal til Virginiu. Daniel, sem nú var orðinn 16 ára, í meðallagi hár og grannvaxinn, fór með vini sínum til veiða allt að Yadkinfljóti, röskum 300 kílómetrum suðvestar, í North Carolina. Eftir eins árs veiði- ferð báru þeir feng sinn aftur til Philadelphia og seldu hann fyrir 1300 dollara. Og Squire varð svo mikið um feng Daniels, að hann flutti til Yadkin næsta ár. Nú voru eldri bræður Daniels giftir, og Squrie hafði nóg að gera við handverk sitt. Hann var járnsmiður. Daniei var því látinn um sínar veiðar. Ekki leið á löngu þar til hann varð vel þekktur á mörkuðunum í Salisbury. Saga er sögð um komu hans þangað eitt vorkvöldið, með hest sinn klyfi- aðan af skinnum af loðdýraveiðum. Tveir menn, sem voru að drepa tímann á markaðssvæðinu, spurðu hvort hann vildi koma í skotkeppni — og leggja nokkuð undir til að gera þetta meira spennandi. Hann var til í það. Síðan fóru þeir út á akur þar skammt frá, þar sem Daniel vann fljótlega 10 dollara, mönnum til mikillar gremju, að því er virðist. Svo annar þeirra sagði: ,,Ég skal leggja 100 dollara undir á móti skinnunum þínum. Við skjótum einu skoti meira.” Þetta var gamla sagan um sveita- lubbann, sem átti að snúa á. Fyrirfram hafði verið komið skot- marki í tré, með kúlugati aðeins hárs- breidd frá miðju. Allt sem hinn ráða- góði borgarbúi þurfti að gera var að skjóta nógu víðsfiarri markinu, en ganga síðan að kúlufarinu og segja það sitt. Daniel óskaði manninum til ham- ingju með vel heppnað skot. En hann lét ekki blekkjast. Hann hafði séð, að maðurinn beindi byssunni til hliðar um leið og hann iét skotið ríða. Hann vissi, að nú hafði hann látið snúa á sig. En hann bar riffilinn upp að öxlinni, miðað eins vandlega og hann gat, og skaut beint í miðpunktinn. ÓBYGGÐIRNAR KALLA. Bretarnir höfðu til að byrja með myndað nýlendu sína á austurströnd Nýja heimsins, Norðurameríku, og
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.