Úrval - 01.05.1976, Page 89

Úrval - 01.05.1976, Page 89
ÞJOÐSAGAN DANIEL BOONE 87 landið og kynntist því betur en nokkur hvítur maður á undan hon- um. í hans augum var þetta „önnur paradís.” Hvað eftir annað lá við, að hann lenti í kasti við Shawnee indíána, og sagan segir, að þeir hafí að lokum króað hann af. Hann hafð verið að kanna hæð uppi yfir Dicksá, þegar fíölmennur hðpur manna Wills kaf- teins kom í ljós fyrir aftan hann og lokaði undankomuleiðinni. Fram undan var þverhnípi, en fyrir neðan voru klettar og fljótið. Þegar indíán- arnir nálguðust, með axirnar reiddar, tók Daniel á rás fram á klettabrúnina og kastaði sér fram af. Indíánarnir voru vissir um, að nú væri hann allur, komu hlaupandi fram á brúnina — og sáu Daniel klifra í flýti niður úr laufmiklum hlyni, sem náði svo sem tíu til tólf metra upp eftir 20 metra háum klettinum. Hann var aleinn fram til 27. júlí, þegar Squire kom aftur. Næsta haust og vetur söfnuðu þeir enn skinnum. Loks þótti Daniel sem hann hefði nóg til þess að borga skulir sínar og standa straum af búferlaflutningum aftur til Kentucky. í mars 1771 hlóðu þeir hesta sína með skinnum og lögðu af stað heim. En snemma 1 maí, þegar þeir voru aðeins fárra daga ferð frá Martins- stöð, réðust indíánar enn að þeim og rændu öllu af þeim. Eftir tveggja ára harðrétti og hættu sneri Daniel heim aftur fátækari og skuldugri en þegar hann lagði af stað. LEIÐIN í ÓBYGGÐIR. Um sinn örvænti Bonne. En draumur hans um Kentucky lifði enn. Næstu tvö árin var hann á þvælingi um vesturslóðir, og kom til Kentucky að minnsta kosti tvisvar. Síðan gerðist það 1773, að hann hitti William Russell, og þeir skipulögðu ferðina, þar sem elstu synir þeirra létu lífið. Bergmálið af þeim voveif- lega atburði ómaði um landamæra- byggðirnar. Rauðir menn og hvítir höfðu áður borist á banaspjótum, en grimmdin í þessari árás kom fréttinni á hvers manns varir. Sannleikurinn var sá, að margvís- leg átök áttu sér nú stað milli indíána og hvítra, beggja megin fíallanna. En þegar þeim átökum linnti árið 1774, tók landprangari að nafni Richard Henderson að leggja nýjar áætlanir. Hann og félagar hans buðust til að kaupa milljónir hektara lands af Cherokee indíánum — nærri helm- inginn af því, sem nú er Kentucky og hluta af Tennessee — og stofna þar fjórtándu nýlenduna. Henderson þekkti Boone, og hafði kostað suma af leiðöngrum hans. Hann kallaði hann nú fyrir sig, og í framhaldi af því fór Boone síðustu könnunarferðina til Kentucky, og dvaldi næstu fimm mánuði meðal Cherokee indíána, meðan hann kynnti þeim tilboð Hendersons. Þetta endaði með því, að Henderson Transylvania Company fékk yfírráð yfir nætti átta milljónum hektara fyrir jafnvirði fjörutíu og fíögur
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.