Úrval - 01.05.1976, Síða 108
106
það, sem ber vott um drottnunar-
girni og yfirgangssemi, eru þeir
þættir slíks skyldleika, sem er hættu-
legt hvaða hjónabandi sem er.
BÚIST VIÐ OF MIKLU.
I menningu okkar er á kreiki sú
mikla goðsögn, að hjónaband sé
lausn vandamála. Því er á hinn
bóginn svo farið, að í hjónabandinu
koma bara ný viðfangsefni og vanda-
mál í stað þeirra gömlu. Eini
mögulegi gróðinn er fólginn í mögu-
leika á varalegri hamingju.
Beth lýsir þessari sjálfheldu á
eftirfarandi hátt: ,,Mér fannst hjóna-
bandið einna helst líkjast því, að
verið væri að lesa Öskubusku aftur á
bak. Á brúðkaupsdaginn minn var ég
klædd þessum stórkostlega silkikjól
og bar fagran brönugrasavönd. En tíu
dögum síðar var ég komin á fætur
kiukkan 6 og var að reyna að koma
draumaprinsinum mínum og mér
sjálfri af stað í vinnuna.”
Hvert er svarið við þessu vanda-
máli? Það er fyrst og fremst fólgið í
því að búast ekki við of miklu. Fyrir
allt þarf að borga eitthvert gjald, og
gjald varanlegs hjónabands er hátt,
þótt það þurfi ekki að vera allt of hátt.
Þar er um vöruskiptaverslun að ræða:
algert persónulegt frelsi er látið af
hendi í skiptum fyrir sameiginlegan
styrk, kynferðislegt frelsi fyrir kyn-
ferðislegt öryggi, sjálfstæði fyrir það
að makarnir eru hvor öðrum háðir á
gagnkvæman hátt, ráðstöfunartekjur
ORVAL
í skiptum fyrir tilfinningalega full-
nægju.
En auðvita er sagan ekki öll sögð
með þessum orðum. Varanlegt
hjónaband býður upp á ýmiss konar
óbeina og illskilgreinanlega full-
nægju. Karlmaður, sem haldinn er
öryggisleysi, getur fundið takmarka-
lausan styrk og uppörvun í örmum
konu sinnar. Konan getur öðlast
fullkomna tjáningarmöguleika fyrir
hæfileika sína og kveneðli sitt, njóti
hún hvatningar og samvinnu maka
síns.
BERGMÁL AF MÖMMU OG
PABBA.
Bestu hjónaböndin eru þau, þar
sem ungu hjónin fá að vera óáreitt án
afskipta annarra. En allt frá brúð-
kaupsdeginum er venjulega um fjóra
aðra einstaklinga að ræða, sem reyna
að gerast aðilar að þessu nýja hjóna-
bandi, að minnsta kosti úr fjarlægð.
Atburðarásin er venjulega þessi: í
bernsku eru mamma (og pabbi í
minna mæli) oft við hlið barnsins og
gefurþví ráð, segir því til, finnur að
við það, leiðréttir skyssur og túlkar
ýmsar þær aðstæður lífsins, sem verða
á vegi barnsins. Þegar varnið verður
svo loks fullorðin persóna, hefur sá
ungi rnaður eða sú kona safnað sér
ríkulegum forða af viðhorfi og
viðbrögðum foreldranna við alls
konar aðstæðum og vandamálum.
Og á erfiðustu augnablikum lífsins
geta slíkar minningar og slík tengsl