Úrval - 01.05.1976, Qupperneq 117
FLJÖTANDI HEIMUR ’ ’
115
skapað höfðu þessi listaverk, hlutu að
hafa verið miklir listamenn!
Þannig átti ást Vesturlandabúr á
japönskum tréristulitprentmyndum
upptök sín. Nú er hægt að fá allt að
því 76.000 dollara (um 13.5 milljónir
króna) fyrir eina slíka japanska
mynd. A síðasta áratug einum saman
hefur markaðsverð sjaldgæfra mynda
af þessu tagi, sem eru í góðu
ásigkomulagi, næstum því tólffald-
ast, og verðið er enn á hraðri uppleið.
Samtímis er hægt að fá ófullkomnari
og algengari frummyndir á um það
bil 25 dollara (um 4.500 krónur),
sem er heppilegt fyrir hina efna-
minni
Slík myndagerð blómstraði í aðeins
stuttan tíma í Japan, eða frá því rétt
eftir 1740 þangað til rétt eftir 1860.
Mestallan þennan tíma var þessi
eyþjóð næstum alveg einangruð frá
umheiminum. Otlendingum var
meinaður aðgangur að landinu, og
borgarar landsins máttu ekki ferðast
til útlanda að viðlagðri dauðarefs-
ingu. Frelsi manna var mjög tak-
markað. Jafnvel dulbúin gagnrýni á
gerðum hinna hernaðarlegu stjórn-
enda landsins gat haft handtöku í för
með sér.
í þessu andrúmslofti sneru íbúar
Tokíó sér að afþreyingu þeirri, sem
var að fá í skemmtihverfinu Yoshi-
war. Viðskiptin gengu vel í geisha-
húsum og veitingahúsum hverfisins,
þar sem Tokíóbúum bauðst glaðværð
sem uppbót á hinar ergjandi tak-
markanir, sem voru á flestum sviðum
,, Stúlka með lukt á svölum um nótt.' ’
Höfundur Haonubu.
lífsins í þessu lögregluríki. Og það
var af þessum nautnaheimi, heimi,
sem skreyttur var mána og kirsu-
berjablómum, fullur af söng, víni og
fallegum stúlkum, sem hin japanska
tréristulitmyndaprentun fékk sitt
yfirbragð, sitt eðli og sitt nafn:
Ukiyo-e — „Myndir af fljótandi
heimi”. Þessar myndir voru næstum
eingöngu gerðar í Tokíó og af
mönnum, sem elskuðu þessa gróf-
gerðu borg sína og íbúa hennar. Yfir
þeim hvíldi svipur léttleika, dirfsku
og skorts á virðingu við viðteknar
venjur. Hinar litríku skyndimyndir af
lífinu í borginni, draumkenndu