Úrval - 01.05.1976, Síða 120
118
ÚRVAL
Kuniyoshi, sonur silkilitunarmanns,
seldi notaðar gólfmottur við hvers
manns dyr til þess að draga fram
lífið. Hokusai, uppeldissonur spegla-
gerðarmanns, er sagður hafa selt
sælgæti og rauðan pipar sér til
lífsviðurværis á árbakkanum í Tokíó.
Kiyonaga ólst upp 1 einu hinna
rustafengnu hverfa nálægt fiskimark-
aðinum, en varð helsti meistari hinna
fíngerðu þátta þessarar listar. Hans
sérgrein var myndir af fegurðardísum
Tokíóborgar. Japanskar konur eru oft
leggjastuttar, en þegar mynd þeirra
var komin á pappírsörkina hans,
höfðu þær breyst í hávaxnar, leggja-
langar, grannvaxnar og fíngerðar
gyðjur. Guðdómleg og algerlega
óhöndlanleg ímynd kvenlegrar feg-
urðar hafði þar með haldið innreið
sína inn í hina nýju listgrein,
Ukiyo-e.
Þessi fínlega stílfæring náði svo
hámarki sínu með Utamaro
(1753—1806), en í augum margra
unnenda þessarar listgreinar er hann
skærasta stjarna á sjörnuhimni
Ukiyo-e. Verk hans einkennast af
göfgi, sem leiðir hugann að virðuleg-
um glæsileika Raphaels og Leonardos
da Vinci. Utamaro fann sínar mest
töfrandi fyrirsætur meðal geisha-
stúlknanna í Yoshiwara, sem voru þá
hinar ríkjandi prinsessur skemmti-
hverfis þessa. Þær voru vel að sér í
tónlist, bókmenntum og dansi. Þetta
varð til þess, að vestrænir gagnrýn-
endur áður fyrr álitu, að Utamaro
væri spilltur gjálífisseggur. í rauninni
var hann traustur og trúr fjölskyldu-
maður, en atvinnumaður í list sinni,
sem gerði sér einfaldlega grein fyrir
því, hvar finna átti hinar réttu
fyrirsætur að myndum þeim, sem
hann ætlaði sér að gera. Nú er frægð
hans orðin slík, að safnarar slíkra
mynda eru á sífelldu iði. Vel með
farin eftirmynd af mynd hans af
Ohisu, frammistöðustúlku á tehúsi,
var seld á 37.000 dollarar (um 6,5
milljóni króna) á uppboði í New
York árið 1972, en í júní í fyrra var
hún seld á 70.000 dollara (um 39,5
milljónir króna) hjá sama uppboðs-
haldara!
Hinir síðustu þessara miklu lista-
manna, þeir Hokusai og Hiroshige,
sköpuðu nýjan heim, hinn ánægju-
lega heim landslagsmynda. Hokusai,
sem dó árið 1849, þá 89 ára að aldri
og enn í fullu listsköpunarstarfl,
hefur eftirlátið okkur nokkrar af
þekktustu myndunum af þessu tagi,
þar á meðal nokkrar stórfenglegar
myndir af fjallinu Fujijama.
Hiroshige, sem fæddist miklu
síðar, er að vísu enn vinsælli, en það
er vegna þess, að það ríkir alveg
sérstakt andrúmsloft í landslags-
myndum hans. Enginn hafði nokkru
sinni tjáð rökkur, tunglskin eða
hlýjar sumarskúrir af slíkri innlifun I
myndum sem Hiroshige. Það er eins
og maður finni sjávarseltuna af
hafgolunni hans. Við finnum ilminn
af blómunum hans. Snjórinn hans
fellur eða safnast í skafla eða hleðst
upp í laufléttum lögum á hofaþök-