Úrval - 01.05.1976, Page 124
122
URVAL
greind, veldur hann því, að sá, sem
er haldinn honum á einhverra hluta
vegna mjög erfítt með að fást við orð
og tákn. Eitthvert óljóst afbrigði í
skipulagningarmynstri heilans veldur
því, að hæfíleiki barns, sem er að
öðru ieyti greint, til þess að læra að
lesa, að skrifa læsilega, að stafsetja
eða kannski einnig að beita tölum
nýtist ekki. Bókstafír breyta um stöðu
í orðum, snúa öfugt, eða verða á
hvolfi, eða brenglast á ýmsan hátt
eða þeir skipta um hlutverk við aðra
stafí. Orðið ,,tek” verður að orðinu
,,ket”, stafurinn b skiptir um hlut-
verk við stafínn d eða dulbýst jafnvel
sem stafurinn p eða q. Skilti, sem á
stendur OIL (olía), breytist allt í einu
í töluna 710. Margir þeir, sem
haldnir eru lesblindu, eiga erfítt með
að átta sig á hæð, breidd og dýpt, á
stefnunum upp, niður og til hliðar,
og sllkt hefur stundum í för með sér
líkamlegan klunnahátt og klaufaskap
viðkomandi aðila.
Allt frá því lesblinda var greind
sem ákveðinn sérgreindur ágalli af
þýskum og breskum augnsérfræð-
ingum á 19- öld, hefur hún verið
rannsökuð og um hana rætt og deilt
fram og aftur. Hún er enn óleyst
vandamál. Sumir sérfræðingar halda
því fram, að vandamál þetta fyrir-
fínnist ekki sem sérstakur aðskilinn
ágalli, þar eð henni fylgja ekki nein
ytri merki né greinanlegar skemmdir
eða gallar á taugakerfi og taugum og
vegna þess, að hin furðulegu sjúk-
dómseinkenni em svo mismunandi,
að þau virðast næstum alveg einstakl-
ingsbundin. Kennarar hafa sérstak-
lega hallast að því að flokka þetta
vandamál með öðmm víðtækum og
óljósum ágöllum og kalla þetta einu
nafni ,,skort á námsgetu”. En samt
vita kennarar, sem hafa beitt ýmsum
brögðum, þjáðir foreldrar og auð-
mýkt fórnarlömb ágalla þessa, að það
er eitthvað alveg sérstakt að, eitthvað
sérstakt og lamandi, eitthvað hræði-
legt.
Nelson A. Rockefeller varaforseti
er einn slíkra „sjúklinga”, sem náð
hefur einna lengst á framabrautinni.
,,Ég sé cft stafí og tölur í þveröfugri
röð,” segir hann, ,,eða hugsa röð
þeirra jafnvel aftur á bak.” Nokkrar
línur úr dagbók, sem hann skrifaði
11 ára að aldri, sýna greinilega,
hversu óskaplega erfítt hann hefur átt
með að stafsetja jafnvel einföld orð,
þannig að ,,park” (garður) verður
t.d. að ,,parak”. Rockefeller náði
aldrei tökum á stafsetningu. En samt
lauk hann prófí ,,með láði” frá
Dartmountháskólanum og fékk inn-
göngu í félag afburðanemenda.
Velgengni Rockefellers við að sigr-
ast á þessum ágalla sínum byggist
ekki á neinni leynilegri lækningu.
Honum lærðist bara að sætta sig við
aðstæðurnar og gera vissar ráðstafanir
til að sigrast á ýmsum erfiðleikum,
sem tengdir voru þessum ágalla.
Hann varð til dæmis að einbeita sér
alveg sérstaklega, þegar hann þurfti
að lesa eitthvað. Enn þann dag í dag
lætur hann jafnvel aðstoðarmenn