Goðasteinn - 01.09.1970, Blaðsíða 21
Árni Þ. Jónsson, Hrífunesi:
Fjárleit á
framandi slóðum
Árið 1965 eru 6 menn úr Skaftártungu ráðnir til kindaleitar norð-
ur á öræfum, milli Tungnár og Langasjós, en það er Grænifjall-
garður og Tungnárfjöll allt austur að Vatnajökli. Eftirtaldir menn
réðust til fararinnar: Árni Jóhannsson, Gröf, Sæmundur Björns-
son Múla, Sverrir Sigurðsson Ljótarstöðum, Valur G. Oddsteins-
son Úthlíð, Þórir P. Guðjónsson Hemru og Árni Þ. Jónsson Hrífu-
nesi. Áðurnefnt landsvæði hafði aldrei verið smalað áður, og var
því venjulega borið við, að þarna myndu aldrei stöðvast kindur
vegna algers grasleysis. 1 seinni tíð var þó farið að bera á því að
þarna þyrfti að framkvæma fjárleit.
Það mun hafa ýtt undir og styrkt þann málstað, að hinn kunni
fjallabílstjóri, Guðmundur Jónasson frá Múla var á ferð í Tungár-
botnum um vorið og fann dauða kind í svonefndu Botnaveri.
Brennimark var á horni kindarinnar, er gaf vísbendingu um eig-
anda hennar. Lét Guðmundur vita af þessu, er hann kom til
byggða, og reyndist eigandi kindarinnar Eiríkur Björnsson raf-
virki í Svínadal. Kom þá í ljós, að kind þessa hafði vantað á
Goðasteinn
19