Goðasteinn - 01.09.1970, Blaðsíða 22
heimtur haustið áður ásamt tveim morgolóttum hrútlömbum.
Fleira fé vantaði, sem haldið var og, að þarna hefði dagað uppi.
Ferð þessivar farin á tveimur jeppum (Austin Gipsy og Willy’s),
bílstjórar: Valur Oddsteinsson og Árni Jónsson. Beðið var nokkra
daga eftir uppstyttu frá því ferðin var endanlega ákveðin. Sunnu-
daginn 12. september, kl. 1 e. m. lögðu þeir fyrstu af stað. Haldið
var eftir Fjallabaksvegi nyrðri, þegar mannskap og farangri hafði
verið safnað í bílana. Heiðskírt var í byggð en þokuslæðingur
á hæstu fjöllum.
Þess ber að geta, að til fararinnar var ráðinn sjöundi aðilinn,
hundurinn Neði frá Hrífunesi, en hann skyldi gegna því hlut-
verki að taka kindur, ef fyndust, og var hann farþegi í Willysnum;
var aftur í bílnum, ofan á dótinu. Lá hann þar fram á lappir
sínar og horfði fram á veginn eins og aðrir, sem í bílnum voru.
Þegar byggðinni sleppir, er ekið skammt suðvestan við Svarta-
núp, sem er eyðibýli, um Hurðabök og Þorvaldsaura, og er þá
farið þvert yfir hina fornu Fjallabaksleið, Bjarnargötu þá, er Flosi
á Svínafelli fór með lið sitt hina örlagaríku ferð að Bergþórshvoli.
Næst liggur leiðin yfir Þorvaldsá. Nú fórum við allt í einu að
heyra dunur og dynki og mátti helzt ætla cinhverja hræringu frá
iðrum jarðar, enda Katla og Laki sitt til hvorrar handar. Fljót-
lega kom þó í Ijós, að það voru iður rakkans, sem gengu í bylgj-
um, og kom nú gusa, er gekk yfir herðar okkar. Skyndilega voru
bifreiðarnar stoppaðar, og þeir, sem inni voru, þustu út í hreint
fjallaloftið, og rétt hjá liðaðist Þorvaldsá blátær um heiðina. Tóku
menn nú upp sjálfskeiðunga sína og skófu hver af annars hand-
leggjum og herðum og Þorvaldsá tók þátt í þeirri hreinsun, með
góðri lyst að því er virtist. Haft var á orði, að réttast væri að
láta seppa nú hlaupa með, en brátt var hann tekinn í bílinn á
ný, því ekki var talið ráðlegt að láta hann eyða orku sinni og
eiga e.t.v. í vændum að þreyta hlaup við sprettharðar sauðkindur,
sárfættur í þokkabót af að hlaupa um vikurinn, sem nóg var af
á leið okkar.
Hér norðar heitir Þorvaldsdalur, fornbýli frá Tólfahringum, scm
eru hér austar, nær Skaftá. Sagan segir, að þar hafi verið 12
bæir, heil kirkjusókn og kirkjan verið í Réttarfelli. Bæjarhverfið
20
Goðasteinn