Goðasteinn - 01.09.1970, Blaðsíða 61
fjallinu og margvíslegt tilefni fyrir unglinga að hlakka til rétta-
dagsins.
Og ég ætlaði í réttirnar! Mér hafði verið lofað því um vorið
ef ég yrði viljugur að smala ánum. Fyrst um sauðburðinn og svo
sitja hjá kvíánum fram eftir sumrinu. Það var nú hvorttveggja,
að til mikils var að vinna, enda var margur smalakrókurinn, marg-
ur spretturinn allt sumarið. Við vorum tveir drengir, hinn nokkru
eldri. Smalamennskan var erfið, engar girðingar þá til og hag-
arnir fullir af geldfé, ókunnugu. Það gerði smölunina mjög erfiða.
Þó ærnar væru dálítið blakkari á lagðina, sást það ekki vel til-
sýndar. Það vildu því verða býsna margir og langir krókarnir,
sem varð að hlaupa. Og þetta var alla daga, allt sumarið og
hvernig sem veður var, stundum blindþoka og dimmviðri. Smala-
vegurinn rúmur eins klukkutíma gangur á langveginn en um
þriggja kortera á þverveginn. Alltaf gangandi! Landið er hraun,
sem þótti illt yfirferðar fyrir hesta. Venjuleg smölun tók um þrjá
klukkutíma.
Ég átti líka að fá góðan hest í réttirnar, hæfilega viljugan fyrir
mig og fljótan. Sjálfsagt var að ríða í sprettum og reyna hestinn
við hestana hjá strákunum á hinum bæjunum, sem við mundum
hitta á leiðinni. Og ég átti að ríða í hnakk og hafa nestispoka
fyrir aftan mig með kjöti og kökum og lummum. Þetta voru nú
engir smámunir.
Og ég mátti fara kveldið fyrir sjálfan réttadaginn og vera í
tjaldi hjá fjallmanninum yfir nóttina á Murneyri við Þjórsá, en
þar var þá jafnan legið með safnið síðustu nóttina. Áður en lagt
var af stað, var ég drifinn í jakka af fullorðnum manni utan yfir
mig og látinn hafa hlýjan trefil um hálsinn; ekki myndi veita af
að búa sig vel undir nóttina. 1 fæturna var ég færður í gráa reið-
sokka, sem náðu uppfyrir hné. I þeim var ég utanyfir skónum.
Fóstra mín tók nálspor í sokka þessa bæði utan- og innanfótar
svo þeir færu ekki niður.
Svo var lagt af stað, og allt gekk vel. Þegar komið var austur
á Murneyri, var safnið þar komið. Venjulega var búið að tjalda
í albjörtu. Þá var nú heldur en ekki líflegt yfir að líta. Fyrst og
fremst allt féð, safnið 30-40 þúsund fjár, en svo mun það hafa
Goðasteinn
59