Úrval - 01.02.1978, Side 6
4
ÍJRVAL
Svarið er ósköp einfaldlega rokk-
músíkin, sem tröllríður allri plötu-
útgáfu og hefur yfir 60% af allri
heildarsölu hljómpiatna. Við getum
látið sem við séum hrifin af Beethoven
oghans líkum, en klassísk músík hefur
ekki nema svo sem flmm prósent af
heildar plötusölunni, og sú tala fer
lækkandi. Jass hefur heldur stærri
sneið af kökunni, en flest annað —
hljómplötur til tungumálanáms til
dæmis — eiga svo litla sneið að hún er
vart sýnileg.
Rokkmúsíkin nú til dags er svo sem
engin ein lína, heldur skiptast þar á
margvíslegargreinar: hart rokk, fram-
sóknar-(progressive)-rokk, þjóðlaga-
rokk, sveitarokk og hvað þetta nú allt
saman heitir. En nafnið skiptir ekki
máli, því fyrir milljónir unglinga er
rokkið meira en músík: Það er trúar-
atriði; miðpunktur þarfa þeirra,
drauma, oghugsjóna. Ogþaðerþetta,
sem hefur gert iðnaðinn svona
voldugan. Fyrirþá, sem rokkið er trú,
er það að eyða peningum í plötu sama
og fyrir ákafan trúmann að láta
fímmþúsundkallí samskotabaukinn.
En þar endar líka líkingin við
trúarbrögðin. Jafnvel harðsvíruðustu
forsvarsmenn iðnaðarins viðurkenna,
að hann sé meiri háttar sýndar-
mennska og oft á tíðum harla loðinn.
Þótt þúsundir þeirra, sem á honum
lifa, fari óumdeildanlega heim til
maka, barnaoghundaá hverju kvöldi,
litar hvers knar spilling hljómplöm-
iðnaðinn: Múmr til plömsnúða,
útbreidd notkun fíkniefna, fáránlegir
kynórar og skrípileg sviðshegðun.
Segja má, að Clive Davis sé
dæmigerður plömiðnaðarmaður.
þetta er maður á miðjum fímmmgs-
aldri, sem býr með konu sinni og
fjómm börnum í ríkmannlegri íbð í
New York. Hann lauk lögfræðinámi
frá lagaskóla Harvard og tók upp
lögfræðistörf Hjá Columbia Records
árið 1960.1967varhannorðinnforseti
fyrirtækisins. Þegar hann kom til
Columbia var rokkið aðeins 15% af
framleiðslu fyrirtækisins. 1973 hafði
hann náð samningum við stjörnur eins
ogjanisjoplin, Blood Sweat and Tears
og Chicago, og Columbia var orðið
leiðandi fyrirtæki í rokkiðnaðinum.
Sama ár var Davis sakfelldur í New
Jersey fyrir skattsvik, og rekinn frá
Columbia. Hann lét það ekki á sig fá,
heldur yfirtók óþekkta plötuútgáfu,
safnaði að sér stómm nöfnum og
breytti nafni fyrirtækisins í Arista.
Innan þriggja ára var það orðið sjötta
stærstaplötufyrirtæki Bandaríkjanna.
Það er hægt að heimfæra næsmm
allt, sem segja má um tónlistarbrans-
ann, upp á Davis. Hann hefur verið
kallaður fjármálasnillingur, sem
„fínni lyktina” af lagi, sem líklegt er
til að slá í gegn, yfir þver Bandaríkin.
Hann er sagður ófyrirleitinn harð-
stjóri, sem hugsi aðeins um gróðahlið-
ina. Annað mál er, að Davis hefur
,,gott eyra” — hann kann lagið á að
laga lag, hljómplöm eða skemmmn
þannig að þetta slái í gegn. Randy
Edelman, tónskáld, minnist þess er