Úrval - 01.02.1978, Qupperneq 12
10
LJRVAL
mér thai, gæti það enginn. Þótt hún
væri upprunalega kínverks talaði hún
lýtalausa thailensku og var sjálf-
menntuð bæði í þýsku og ensku. Og
þótt hún væri kannski — ja, svolítið
skrýtin — þá var óhætt að fullyrða að
það færi engin í fötin hennar.
Ég gleymi aldrei þeim degi, er
fröken Muey kom fyrst heim til
okkar. Hún stóð í dyrunum,
grannvaxin kona á að giska fertug
með herskátt heljarbros og gríðarstór
sólgleraugu, sem hún tók aldrei ofan.
Hún kynnti sig með furðulega hárri,
mjórri og hrjúfri röddu, og allar
setningar sveigðust upp í endann.
,,Ég hef kennt mörgum ameríkön-
um”, sagði hún. „Flestir eru
heimskingjar. Sérstaklega karlmenn-
irnir, hefur mér reynst. En konurnar
eru latari, hefur mér reynst. Hvað
heldur þú um það?”
,,— Nú — ég...”
,,Allt í lagi. Ef þú ert löt eða
heimsk, vil ég ekki kenna þér. Ef þú
lýgur að mér, kem ég ekki aftur. Ef
þú vilt læra thai verðurðu að lesa.
thai. Ekki það sem þú munt kalla
hljóð-fræði-i. Hljóð-fræð-i er prump.
Kennir þér að tala svo enginn getur
vitað hvað þú ert að segja. Ég kenni
þér thaistafrófið. Þú átt að tala thai
eins og thailendingar, ekki eins og
hljóð-fræð-i.”
,,Hérna— fröken Muey, ég hélt
kannski að...”
,,Þú hélst kannski ekki neitt. Þú
vilt læra thai af mér, og ég verð að
vera stolt þegar einhver heyrir til
þín.”
Hún rótaði í gámstórri handtösk-
unni sinni og dró upp úr henni thai-
lenskt stafrófskver. Á fyrstu blaðsíð-
unni benti hún á thailenska táknið
go, sem lítur út svipjað og n og
táknar hart g. Ofan við það var mynd
af svörtum hænuunga, gai. Gai á go,
rétt eins og eplið á e.
,,Sjáðu£0,” sagðihúnskipandi, og
bankaði með rýtingslaga vísifingurs-
nögl á gogginn á unganum.
„Amerísk hljóð-fræð-i segir að það sé
sama og k, svo það getur vel verið að
þú valsir um allt og vitir aldrei að það
er ekki sama og k. Hljóðið er go go
go en ekki ko ko ko eins og kráka. Þú
skalt bara segja alltaf kai í staðinn
fyrir gai þegar þú ferð á markaðinn
að kaupa þér kjúkling svo markaðs-
konan haldi að þú segir kai — egg —
vegna stafsins ko en þú þekkir bara
ameríska hljóð-fræð-i svo þú heyrir
aldrei muninn og thailandingar
halda að þú vitir bara ekki hvað.”
Innra með mér hvíslaði lítil rödd:
,,Ef þessi kona verður hér ennþá eftir
15 mínútur, hefur þú samþykkt hvað
sem er.”
Fröken Muey hélt áfram að pikka í
neflð á unganum eins og hún ætlaði
að dáleiða mig. „Hafðu eftir mér
þessa setningu: ,,Hún fór mjög hægt
með röð af hljóðum. Ég lagði mig
fram um að hafa þau eftir — engin
hermikráka hefði getað lagt meira á
sig en ég. Hvers vegna lagði ég svona
mikið á mig? Var það vegna þess að