Úrval - 01.02.1978, Síða 14

Úrval - 01.02.1978, Síða 14
12 dag gerir þú bara kannski fimmtíu setningar. En ekki meiri lýgi.” „Þá það,” snökti ég gegnum dyrnar. „Hættu þessu voli. Vertu kjur inni í baðherbergi svo þú þurfir ekki að horfa í andlit mitt og skammast þín.” Fótatak hennar fjarlægðist og ég opnaði baðherbergisdyrnar. Æ síðan hef ég skilið hve óendanlega mikið felst í þeirri lyst að hjálpa fólki aði „halda andlitinu.” Eftir mánuð í viðbót var ég í alvöru farin að lesa, skrifa og tala thai. Ekki hundrað prósent, en fröken Muey þurfti ekki að skammast sín þegar hún hlustaði á mig. Gleði hennar yfir framförum mínum var næstum óþægileg. En geta mín til að halda í við vilja hennar, til að afstýra því að hún tæki að stjórna lífi mínu út í æsar, var á hröðu undanhaldi. Svo varð ég ófrísk aftur og greip það eins og hálmstrá. „Fröken Muey,” byrjaði ég einn daginn, án þess að líta upp úr dagblaðinu, sem ég hafði verið að lesa úr með pikkið í vísifingursnögl hennar sem taktmæli („Frú Morell, thai hljóðfall, thai hljóðfall!”). „Fröken Muey, það er nokkuð sem ég þarf að segja þér.” Pikkið snögghætti. „Tala þú, frú Morell.” „Ég er ófrísk. Ég vona að þú skiljir, að ég verð að gera hlé á náminu.” Hún reis ofurhægt upp úr stólnum LJRVAL og stóð grafkyrr, með óbærilegt bros á andlitinu. „Það er ekki barnið, er það? Segðu það, frú Morell. Ekki Ijúga að mér! ’ ’ „Það er rétt — það er ekki barnið, Ó, fröken Muey, reyndu að skilja mig!” Hún tók bækurnar sínar saman hratt og snyrtilega. Svo teygði hún sig yfir borðið og greip um axlir mér. Hún var óhæfilega sterk. Svo rak hún upp skelfilegt kjökurhljóð, greip bækur sínar og flúði. Ég frétti ekki af henni aftur fyrr en mánuði eftir að Nick litli fæddist. Á meðan hélt ég áfram að kynna mér thai með aðstoð frænku kunningja okkar, sem hafði látið í ljósi áhuga á að kynna mér bókmenntir þjóðar sinnar. Þegar fröken Muey tók að heimsækja mig aftur, minntist hún aldrei á að halda áfram kennslunni. Þótt hún vissi, að ég hefði fengið mér nýjan kennara, brostum við báðar meðan við ræddum saman og björguðum hvor annarrar andliti. Eftir þetta fór hún að koma við hjá mér svo sem einu sinni í mánuði. Við fengum okkur te og endrum og eins leiðrétti hún eitthvað sem ég sagði ekki rétt á thai. Svo hlógum við báðar og spennan slaknaði. En þar kom, að hún hætti að heimsækja mig. Ég skrifaði henni og fékk bréfíð aftur með stimplinum , .heimilisfang óþekkt.” Ég sá hana aldrei framar.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.