Úrval - 01.02.1978, Blaðsíða 37
SORP: ELDSNEYTl FRÁMTÍÐARINNAR
35
Þeir, sem fjalla um menguiiarmál af völdum sorps og úrgangs,
hafa mjög velt vöngum yfir möguleikum þess að endurnýta hvers
konar úrgang, svo sem notaðar umbúðir og fleira. I New Orleans
hefur verið opnuð sorphreinsunarstöð, sem tekur á móti 650
tonnum af úrgangi á dag. Þar eru hlutir úr járni, áli og gleri teknir
frá og seldir til endurnýtingar. Ýmiss fyrirtæki sækjast eftir kaupum
af þessu tagi. Reynolds Metal Co., eitt helsta fyrirtæki
Bandaríkjanna í vinnslu úr áli, vill fá allt ál, sem hreinsunarstöðin
getur látið í té. Reynolds fylgir þeirri stefnu, að iðnaðurinn verði að
skapa stöðugan og tryggan markað fyrir þau úrgangsefni, sem
mögulegt er að endurnýta.
Þetta er ekkert nýtt hjá Reynolds. Síðan 1967 hefur fyrirtækið
keypt notaðar áldósir af neytendum. Árið 1976 fékk fyrirtækið
þannig nægilegt ál til að búa tii 2,4 milljarða nýrra dósa, en það er
helmingur ársframleiðslunnar. Fyrirtækið þarf aðeins fimm prósent
af þeirri orku, sem fer til að framleiða dósir úr nýju áli, til þess að
framleiða þær úr gömlum dósum.
I þessu sambandi má minna á endurkaup íslenskra aðila á tómum
glerjum. Gosdrykkjaverksmiðjurnar taka við glerjum frá sér og
ÁTVR við þeim glerjum, sem merkt eru stöfum hennar. En verðið,
sem fyrir er greitt, er á mörkum þess að vera nægilega hátt til þess að
fólki þyki borga sig að endurselja glerin. Einkum á þetta við um
ÁTVR, sem hefur glerjamóttöku aðeins á einum stað og geldur
furðulega lítið fyrir glerin, og má sjá þess arna greinilegan stað
meðfram þjóðvegum landsins og víðar.
1,4 milljónir dollara (301 milljón
króna) á ári.
★ Akron í Ohio er að reisa stöð,
sem hreinsar málma úr þúsund
tonnum sorps á dag, en breytir
brennanlegum efnum í gufu sem
dreift er með gufudreifingarkerfi,
sem þegar er fyrir hendi, til 200
viðskiptavina í borginni, þar á meðal
til risaverksmiðju B. F. Goodrich. Til
þess að hitinn frá sorpinu fari ekki til
ónýtis, þegar heitt er í veðri, mun
Goodrich nota gufuorkuna á sumrin
til að knýja loftkælingu og til að
vinna ýmiskonar framleiðsluvörur úr
gúmmíi. James Alkire, áætlunarfor-
stjóri endurvinnslunnar í Akron,
segir: ,,Við sláum að minnsta kosti