Úrval - 01.02.1978, Page 48
46
ClRVAL
ingalæknir, Allan Tamm hefur
kveðið upp úr með þá skoðun sína,
að þrönga buxnatískan núna sé engu
betri en sú tíska, þegar kínverskar
stúlkur voru látnar reyra fætur sína og
svo lífstykkjatískan forðum daga.
Allir vita, að reyrðir fætur urðu
ævilöng fötlun og jafnaugljóst er að
það hindraði öndunina að reyra sig í
lífstykki. Þau gátu einnig valdið
lifrarskemmdum þegar mjög þrengdi
að lifrinni.
Gallabuxurnar eru ekki svo hættu-
legar. Mjaðmagrindin hlífir innri
líffærunum. En þess í stað er hætta á
að mjaðmargrindin þroskist ekki
eðlilega. Mest er hættan hjá ungl-
ingsstúlkum, sem enn eru að vaxa.
En það er einkum meðal þeirra, sem
þrönga buxnatískan herjar sem
ákafast.
Þröngar buxur eru auk þess kaldar
á vetrum og þegar mittisjakkar em
notaðir við er mikil hætta á
blöðrubólgu.
Gallabuxur sem ekki eru litekta
(„blæðandi”) eru ekki lengurí tísku
guði sé lof. Þær lituðu bæði húðina
og nærfötin og það gat verið mjög
erfitt að ná burt litnum.
Flóð af lélegum tegundum.
Gallabuxur voru frá upphafi til-
valin hversdagsflík. Sterkar buxur,
sem þoldu allt, saumaðar eftir
hentugu sniði, sem hæfði mörgum.
En þegar tískan náði tökum á
þessari ágætu flík fór svo að
gallabuxnaúrvalið er orðið að frum-
skógi. Enn flnnast góðar gallabuxur
af upprunalegri gerð, en einnig er til
fjöldi tegunda, sem eru lélegar, bæði
hvað gæðum og sniði viðkemur.
Efni, sem ekki er sterkt heldur
brestur í sundur, bæði sjálfur
vefnaðurinn og við sauma, rennilásar
sem bila, skálmar sem snúast um
kálfana — það eru margir vankantar
á gallabuxum, sem nú eru fram-
leiddar.
Margt af þessu stafar af því að
gallabuxurnar eru tískuföt. Sniðið og
vörumerkið skipta viðskiptavinina
máli. Þess vegna geta framleiðendur
prangað út lélegum efnum með
vefnaðargöllum, sem geta raknað
upp og skilið eftir gat í efninu.
Oft er reynt að dylja lélegt efni
með þvt að stífa efnið mjög mikið á
röngunni. Nýjar eru gallabuxurnar
stífar og fallegar. Það er ekki fyrr en
eftir fyrsta þvott að þær sýna sitt rétta
andlit, og sést að efnið er lausofið og
ekki sérlega sterkt. (Þarna hafa
þvegnu gallabuxurnar, sem líta út
fyrir að vera notaðar þegar í búðinni,
yfirburði. Það sést strax á þeim hvort
efnið er gisið eða snúningur á skálm-
unum).
Rangt sniðnar.
Ef skálmarnar vindast eru buxurn-
ar rangt sniðnar. Hinir ýmsu snið-
hlutar hafa verið lagðir í ranga stefnu
á efninu. Það sparar framleiðendum
efni, en viðskiptavinurinn fær óþægi-
legar og ljótar buxur. Allir vita, að
rennilásinn er veikur punktur og það