Úrval - 01.02.1978, Síða 56
54
ÚRVAL
nálægra svæða vetrarbrautarinnar og
síðan fjarlægari hluta sólkerfis okkar.
Að sjálfsögðu þýðir þetta ekki að
öll menningin þurfi að þróast eftir
þessum reglum. Engu að síður er slík
þróun óhjákvæmileg sumri menn-
ingu sem skotið hefur rótum á vetrar-
braut okkar á þróunarferli hennar.
Geimkraftaverk og vandamál
útvarpsfjarskipta
Af þessum sökum er rökrétt að
álykta sem svo, að sumar tegundir
menningar að minnsta kosti hljóti
óhjákvæmilega að taka til alheimsins.
Breytileg starfsemi hennar hlýtur að
breiðast út til einstakra sólkerfa,
vetrarbrauta og jafnvel vetrarbrauta-
kerfa. En þá er eðlilegt að vænta
merkjanlegrar staðfestingar á starf-
semi þessara skyni gæddra geimvera.
1962 gáfum við þessu fyrirbæri heitið
„geimkraftaverk.” Nú mun ég gera
grein fyrir tveim grundvallarstað-
reyndum, sem hafa meginþýðingu í
þessu sambandi.
1. Niðurstöður allra nútíma stjarn-
fræðilegra rannsókna, eftir því sem
við nú best vitum, virðast útiloka
tilveru , .geimkraftaverka,” hvar sem
er í alheiminum.
2. Niðurstöður allra vísinda á jörð-
inni (meðal annars líffræðilegar)
útiloka jafnvel, að reikistjarna okkar
fái heimsókn slíkra lífvera utan úr
geimnum, hvað þá að þær leggi hana
undir sig sem nýlendu.
Þeir sem aðhyllast „geimkrafta-
verk” binda miklar vonir við
innrauða stjarnfræði, sem hefur tekið
örum framfömm á undanförnum
ámm. Vissulega liggja rökvísar
ástæður til þess. Menning 2, sem
hefur búið sér til lífheim umhverfis
heimastjörnu sína, mun óhjákvæmi-
lega valda innrauðri geislun sem
samsvarar til hitastigsins þar og ætti
að vera nálægt meðalhitastigi jarðar
— 300 gráður á Kelvinmæli. Af
þessum sökum hlytu stjarnfræðingar
að verða varir við slíka menningu sem
uppsprettu innrauðrar geislunar.
Þótt alimargar innrauðar geislun-
amppsprettur hafi fundist til þessa
þá eru þær allar tvímælalaust af
náttúrlegum rótum mnnar. Að sjálf-
sögðu má fullyrða, að eftir því sem
næmi innrauðra skynjara vex, muni
finnast fleiri merkjanlegar uppsprett-
ur. Ef til vill eru einhverjar þeirra
búnar til af lífvemm? Þrátt fyrir það
held ég ekki að tilvist mikillar
innrauðrar geislunar á einhverjum
stjörnum bendi til hugsanlegrar til-
vistar ,,tilbúinna” fyrirbæra á þess-
um stjörnum.
Sérlega áhugaverður er sá mögu-
leiki að greina útvarpsmerki, sem
koma frá tæknilega þróuðum menn-
ingarsamfélögum, til dæmis, af gerð
2. Eins og bent hefur verið á afmarka
höfundar hið almenna vandamál í
sambandi við menningarlíf úti í
geimnum við vandamál útvarpsfiar-
skipta við þessi menningarsamfélög.
Ef slíka menningu er að finna, t.d. í
Andrómedustjörnuþokunni (sem er
ein nálægasta vetrarbrautin og ein