Úrval - 01.02.1978, Side 111

Úrval - 01.02.1978, Side 111
LOFTBRÚIN TIL BERLÍNAR 109 Þótt loftbrúin væri ekki lögð niður fyrr en í ágústlok, til þess að koma upp verulegum birgðum, litu margar flugáhafnir á 12. maí sem lokadag hinnar eiginlegu loftbrúar. Öllum flutningatálmunum á jörðu hafði verið aflétt, og lokaundirbúningur undir vesturþýska heimastjórn, undir forsæti Theodor Heuss sem fyrsta forseta og Konrads Adenauers sem kanslara, var kominn í fullan gang. KLUKKAN ELLEFU AÐ morgni 12. maí voru göturnar umhverfis ráðhúsið krökkar af fólki. 300 þúsund Berlínarbúar voru saman- komnir á sólbjörm torginu, þar sem rauður og gullinn fáni hins gamla, þýska lýðveldis bærðist í andvaran- um, til þess að votta þeim manni virðingu sína, sem hafði leitt þá gegnum 328 daga streitu og harð- rétti. Þetta var söguleg stund — og saknaðarstund. Lucius Clay var að kveðja. Hann hélt inn í húsið í föruneyti margra þeirra, sem höfðu stutt hann þessa erfiðu mánuði — þar á meðal Robertson, Howley og Reuter — og steig upp á ræðupallinn í fundarsalnum. Hann sagði til- heyrendum sínum, að til væru tvær tegundir af hetjum, eftir daga loftbrúarinnar. í fyrsta lagi væru það flugmennirnir, sem hefðu haldið uppi flugi til Berlínar í hvernig veðri sem var og svo íbúar borgarinnar sem höfðu ekki síður sýnt hetjulund, fólkið, sem hafði kosið frelsið og var reiðubúið að færa þær fórnir, sem til þess þurfti. Áköf fagnaðarlæti gullu við, og Clay stóð þögull í ræðustólnum, því honum var orða vant. Robert H. Lochner, túlkur hans, sá að jafnaðar- geð hans var að bresta og tár laumuðust niður kinnarnar. Clay þurfti ekki að segja meira. Fagnaðar- lætin jukust og margfölduðust og sögðu það, sem hann vildi sagt hafa. Þau hljómuðu eins og dýrðarsöngur um alla Berlínarborg. ★ 7]\ 7JV 7jV VJ\ VJV 7|\ Liðsforingi í bandarísku strandgæslunni fékk fyrirmæli um að taka við stöðu í Tulsa í Okalhoma. Honum var sagt að stjórnin myndi greiða fyrir flutning á búslóð hans og persónulegum eigum, en reglurnar leyfðu ekki að eintrjáningurinn hans yrði fluttur á kostnað hins opinbera. Þegar liðforinginn kom heim mokaði hann eintrjáninginn sinn fullan af mold og plantaði í hann begóníum. Og þegar flutningamennirnir komu eftir fáeina daga, afhenti hann þeim sundur liðaðan lista yfír búslóð sína og persónulegar eigur. Þar á meðal stóð: 1 stk. 4,3 metra langt blómaker, bátlaga, úr trefjagleri.” C.C.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.