Úrval - 15.12.1980, Blaðsíða 36
34
ÚRVAL
enn betra efni, og nú er svo komið að
ekki sýnist nema tímaspursmál
hvenær hægt verður að fara að nota
gerviblóð undir venjulegum
kringumstæðum til að viðhalda lífi,
jöfnum höndum með blóðgjöf á
sama hátt og lengi hefur tíðkast.
Science
KÍGHÖSTABÖLUSETNINGIN
ÁHÆTTUNNAR VIRÐI
Þótt unnið sé að því af fullum
krafti að reyna að finna upp
betra og hreinna bóluefni gegn
kíghósta hafa bandarísk heilbrigðis-
yfirvöld eindregið mælt með því að
haldið verði áfram að bólusetja börn
með því bóluefni sem nú er notað,
jafnvel þótt því fylgi örlítil áhætta.
Þessi niðurstaða, sem skýrt var frá í
The New England Journal of
Medicine, greindi jafnframt frá því,
að ef hætt væri að bólusetja, myndi
sjúkdómurinn verða meira en 70
sinnum algengari í Bandaríkjunum
heldur en hann er núna, og fjórum
sinnum fleiri börn látast af völdum
kíghósta heldur en nokkurn tíma af
völdum hliðarverkana bóluefnisins.
„Kostirnir við bólusetninguna eru
meiri en áhættan,” segir Jeffrey P.
Koplan, framkvæmdastjóri
sjúkdómsvarnarmiðstöðvarinnar.
Kíghósti er mjög smitandi
sjúkdómur, sem flyst á milli með
bakteríu. Þar til fyrir þrjátíu árum var
kíghósdnn mikilvirkasti bamamorðing-
inn vestan hafs. Nú eru öll börn bólu-
sett við honum ásamt fleiri barna-
sjúkdómum, en upp á síðkastið hafa
sumir læknar vefengt réttmæti
kíghóstabólusetningarinnar vegna
þess að fyrir getur komið, þótt hlut-
fallið sé mjög lágt, að bóluefnið
valdi heilabólgu. í Bretlandi hefur
þetta mál verið mjög til umræðu, og
margir foreldrar hafa neitað að láta
bólusetja börn sín við kíghósta vegna
þessarar hættu. Þar hefur kíghóstinn
tífaldast á skömmum tíma og tekið
þann toll sem hann hefur alltaf gert.
Koplan bendir á, að dánarríðni af
völdum kíghósta er mörgum sinnum
meiri heldur en af aukav£rkunum
bóluefnisins og þess vegna hefur yfir-
lýsingin, sem getið var um hér að
framan, verið gefin út. AP
BRENNIVÍNIÐ BÆTIR —
OG ÞÓ. . .
I The Journal of the American
Medical Association er sagt frá
rannsókn, sem bendir til þess að
hófleg og dagleg áfengisneysla kunni
að draga úr líkum á hjartaslagi. Þessi
rannsókn var gerð á vegum lækna-
skólans í Harvard og fór þannig fram,
að rannsóknarhópurinn kannaði lífs-
venjur 568 kvæntra karla, sem látist
höfðu af hjartaslagi, og annan eins
fjölda af lifandi körlum sem bjuggu
við sem líkastar félagslegar og efnaleg-
ar aðstæður og þeir látnu höfðu gert.
í Ijós kom að hófdrykkjumenn —
þeir sem drekka í hæsta lagi tvo bjóra,
tvö glös af léttvíni eða tvö glös af vín-
blöndu á dag, og ekki meira en það