Úrval - 15.12.1980, Blaðsíða 37
35
—• eiga síður á hættu að látast af
hjartasjúkdómum en algerir
bindindismenn.
Á hinn bóginn eru enn aðeins
getgátur til um það hvers vegna þetta
er svo, svo það er ef til vill ekki nema
eðlilegt að William P. Castelli,
læknir við Hjarta- lungna- og blóð-
stofnunina í Framingham í
Massachusetts sé varfærinn í
ritstjórnarorðum sem fylgja
upplýsingunum í The Journal of the
American Medical Association:
,,Alls engin áfengisnotkun sýnist
óheilsusamlegri en hófleg áfengis-
notkun. En of mikil áfengisnotkun
hefur óvefengjanlega verið tengd
öllum þeim vel þekktu vandamálum,
sem fylgja áfengisnotkun — allt frá
næringarlegum vandamálum upp í
öndunarvandamál og krabbamein.
Það kann að vera að birting niður-
stöðu á borð við þá sem hér kemur
fram sé alls ótímabær í þjóðfélagi sem
telur 17 milljóniralkóhólista.”
AMA News Release
PILLAN Á UNDANHALDI
Eftir áratugar viðvaranir um hugs-
anlegar hliðarverkanir pillunnar —
getnaðarvarnarpillunnar — fer neysla
hennar hraðminnkandi vestan hafs.
Árið 1975 tóku lyfjasalar á móti
rúmlega 64 milljónum lyfseðla upp á
pilluna, en árið 1978 aðeins 49
milljónum. Þetta er nærri 24%
fækkun á aðeins þremur árum.
„Konur eru æ fúsari að grípa til
annarra getnaðarvarna,” segir Mary
Capon, framkvæmdastjóri Heilsu-
gæsluþjónustu stúdenta við George
Washington háskóla. Þetta kemur
meðal annars fram í því að lyfseðlum
upp á leghálshettu fjölgaði um 140%
á sama þriggja ára tímabili — úr
503.000 lyfseðlum 1975 upp í
1.205.000 árið 1978. Ekki er hægt að
segja með vissu um sambærilegar
tölur fyrir aðrar getnaðarvarnir, þar
sem ekki þarf lyseðla fyrir þeim, en
þó má slá því föstu, að sala á
smokkum og froðu hefur verulega
aukist hin slðari árin.
Úr Washington Post
EKKI EINS GAMLIR OG ÞEIR
HÉLDU / SÖGÐUST
Ýmis svæði á jörðinni hafa orð fyrir
að ala af sér eldra fólk en önnur;
meðal annars Vilcabamba í Ekvador.
En þegar hópur lækna fór þangað til
að skoða gamla fólkið, sem sagðist
vera orðið yfir 120 ára, kom í ljós að
lítið var um þá beinarýrnun, sem
venjulega fylgir háum aldri.
Sum þessara öldurmenna gátu
vottað aldur sinn með fæðingar-
vottorðum. En þau reyndust villandi,
þar sem ættirnar nota sama nafnið
gjarnan æ ofan í æ, mann fram af
manni. Þegar mannfræðingurinn í
rannsóknarhópnum hafði setið við og
búið til kort yfir ættirnar og sett
fæðingarskýrslurnar kerfisbundið
upp, kom I ljós að elsti íbúi héraðsins
var 96 ára.
,,Við fórum í þennan leiðangur til
að rannsaka að hve miklu leyti þetta