Úrval - 15.12.1980, Síða 87
F/ÓRÐI VITRINGURINN
85
„Júdea var fangi Babýlonsfljóta,”
sagði Tigranes með fyrirlitningu, ,,og
synir Jakobs voru í haldi hjá
konungum vorum. Ættflokkar ísraels
eru dreifðir um fjöllin eins og villtir
sauðir. Frá leifunum sem byggja
Júdeu undir oki Rómar mun hvorki
stjarna né veldissproti rísa.
,,En þó,” svaraði Artaban, ,,var
það Hebreinn Daníel, hinn mikli
draumráðandi, hinn vísi
Belteshazzar, sem okkar mikli
konungur Kýros virti og elskaði mest.
Daníel sannaði fyrir þjóð okkar að
hann væri sannur spámaður og
túlkandi hugsana Guðs. Og hann
skrifaði: Vitið því og skiljið að frá
skipuninni um að endurreisa
Jerúsalemborg og til komu hins
smurða munu líða sjö vikur. Síðan
mun endurreisnin standa í sextíu og
tvær vikur.”
,,En sonur minn,” sagði Abgarus,
„þetta eru dulrænar tölur. Hver
getur ráðið í merkingu þeirra?
Artaban svaraði: ,,Þrír félaga
minna meðal Magianna — Kaspar,
Melkíor og Balthazar — og ég sjálfur
höfum leitað í hinum fornu töflum
Kaldea og reiknað út rímann. Það
verður í ár. Við höfum fylgst með
himninum og á vori þessa árs sáum við
tvær stærstu stjörnurnar nálgast hvor
aðra í merki fisksins, sem er merki
Hebreanna. Við sáum þar einnig nýja
stjörnu, sem skein eina nótt en hvarf
síðan.
Núna eru hinar tvær stóru plánetur
aftur að mætast. I nótt renna þær
saman. Bræður mínir þrír fylgjast
með því í hinu forna musteri hinna
sjö hvela, í Borsippu, í Babýlon og
ég fylgist með því hér. Ef stjarnan
skín á ný munum við leggja af stað
saman til Jerúsalem eftir ríu daga, til
þess að sjá og tilbiðja hinn fyrir-
heitna, sem mun verða fæddur
konungur ísraels.
Ég trúi því að táknið muni koma.
Ég hef búið mig undir ferðina. Ég hef
selt hús mitt og eigur og keypt þessa
eðalsteina — safír, rúbín og perlu —
til þess að færa þá kónginum. Og ég
bið ykkur að koma með mér í píla-
grímsförina svo við megum saman
finna kónginn.”
Hann dró fram þrjá stóra gimsteina
undan innsta vafningi mittisgjarðar
sinnar — einn bláan eins og nætur-
himin, annan rauðari en geisla
morgunsólarinnar og hinn þriðja
hvítari en jökulskallaí ljósaskiptum.
En vinir hans horfðu á hann með
einkennilegu og framandi augnaráði,
eins og þeir sem hlustað hafa á
ótrúlega frásögn eða uppástungu um
óhugsandi athöfn.
Að lokum sagði Tigranes:
,, Artaban, þetta er tilgangslaus
draumur. Hann er afleiðing of
mikilla stjörnuskoðana og of háleitra
hugsana. Enginn kóngur mun fæðast
meðal hinnar sigruðu þjóðar Israels.
Og það mun aldrei verða neinn endir
á hinni eilífu baráttu ljóss og
myrkurs. Sá sem þess leitar eltist við
skugga. Vertu sæll.”
Og hver á eftir öðrum afþakkaði