Úrval - 01.02.1982, Qupperneq 16
14
ÚRVAL
skýrir blíðlega fyrir henni að morfínið
sé mjög'gagnlegt til þess að draga úr
kvölum og hæfilegur skammtur
, ,fellir þig ekki um koll’ ’.
, ,Hver kemur til með að borga fyrir
alla þessa þjónustu?” spyr Karl.
„Tryggingar ykkar,” svarar Florence.
,,Þið þurfið þó aldrei að sjá reikning-
ana. Við önnumst það allt fyrir
ykkur.”
Þegar Florence yfirgefur þau eftir
einn og hálfan tíma líður Ball-hjón-
unum báðum betur og það er eins og
þungu fargi hafi verið af þeim létt.
Þau vilja þó ekki að rætt verði við
drengina. ,,Mig langar til þess að
annast um þá sjálfúr og á minn
hátt,” segir Karl. Þau vilja að aðrir
blandi sér sem minnst í líf þeirra og
biðja Florence því að koma ekki nema
hálfsmánaðarlega.
24. nóvember 1980 heimsækir
Mary Lundberg lækni. Kvalirnar eru
stöðugar og eftir að hafa hugleitt það
sem Florence sagði um morfínið
ákveður hún að reyna það. Lundberg
skrifar lyfseðil upp á morfín sem hún
á að taka inn á fjögurra klukkustunda
fresti.
27. nóvember 1980 koma bróðir
Karls og mágkona til þess að dveljast
hjá þeim yfir þakkarhátíðina. Skyndi-
lega verða kvalirnar Mary óbærilegar.
Hún vill ekki eyðileggja ánægjuna
fyrir fólkinu og tekur þess vegna
morfín, hniprar sig svo saman uppi í
sófa í stofunni og reynir að dylja
þjáningar sínar. Karl hringir í
Florence. Hún hefur samband við
Lundberg sem tvöfaldar morfín-
skammtinn og skrifar auk þess upp á
örvandi lyf. Florence nær í lyfin á
legudeild samtakanna. Um það bil
klukkustund eftir að Karl hringdi til
hennar er hún komin og búin að gefa
Mary morfínsprautu. Hálfri klukku-
stund síðar eru þjáningarnar liðnar
hjá og Florence fer aftur og fólkið
heldur áfram að njóta þakkarhátíðar-
innar.
11. desember 1980 ræða Lundberg
læknir og Mary um hvort rétt sé að
hún fái frekari lyfjameðferð. Þau
komast að þeirri niðurstöðu að ókost-
irnir séu fleiri en kostirnir enda engin
von um lækningu úr því sem komið
er. Mary segir við Florence: ,,Mig
langar ekki til þess að þjást að óþörfu.
Mig langar til að nota þann tíma sem
ég á eftir til þess að vera með fjöl-
skyldunni minni.” Florence segir:
,,Það er þitt og læknisins að taka
ákvörðun um þetta en ég styð þig. ’ ’
Fyrirjðlin 1980 fer Mary þrisvar í
búðir til þess að kaupa gjafir handa
fjölskyldunni. Hún er fljót að þreyt-
ast svo Karl ekur henni um verslan-
irnar í hjólastól sem Florence hefur
útvegað þeim. Hún fer á jólaskemmt-
un með Matt í kirkjunni þar sem
hann á að koma fram í jólaleikriti og
stjórna skreytingunni á jólatrénu.
Mary er hress og vill ekki að Florence
komií heimsókn.
31. desember 1980 er Mary með
hægðateppu. Florence kemur til
hjálpar. Að lokum læknast þetta með
því að Mary drekkur ávaxtasafa.