Úrval - 01.02.1982, Blaðsíða 19
SÍÐUSTU DA GAR MAR Y BALL
17
Síðdegis hjálpar Florence Mary að
koma sér fyrir á nýja staðnum — í
fallegu, blómskreyttu herbergi á
sjúkrahúsinu.
10. mars 1981 Það er kvöld. Mary
er í öðrum heimi en þegar Florence
kemur við hana svarar hún.
„Florence, mikið er ég glöð að sjá
þig.” Það er Mary líkt að vera svona
jákvæð. Svo líður hún út af aftur og
Florence og frænka Mary standa við
rúmið þegar hún hættir allt í einu að
anda.
Karl er í þann veginn að ganga út
úr húsinu heima hjá þeim þegar
síminn hringir. Drengirnir eru á leið
út í bílinn og ætla að fara að heim-
sækja móður sína á spítalann. Hann
kallar þá inn aftur og sest í sófann í
stofunni með þeim. Hann tekur utan
um þá og segir þeim að móðir þeirra
sé dáin. Grátandi segir hann: ,,Þið
eruð það besta sem móðir ykkar hefúr
gefið mér, fyrir utan ást hennar til
mín.”
13. mars 1981 er herbergið fullt af
blómum við kistulagninguna. Karl
yngri stendur við hlið föður síns.
Þegar Florence nálgast hann faðmar
þessi feimni og hægláti drengur hana
að sér, drengurinn sem aldrei hefur
látið aðra sjá tilfinningar sínar.
14. mars 1981 er kirkjan full af
fólki við jarðarför Mary. í lok
athafnarinnar syngur fólkið
uppáhaldssálminn hennar, All
Things Bright and Beautifúl, til
minningar um lxf hennar.
24. mars 1981 heimsækir Florence
Karl. Drengirnir eru farnir aftur í
skólann. Hann er að búa sig undir að
hefja vinnu á nýjan leik. Faðir Karls,
sem komið hafði frá Florida til þess að
vera við jarðarför Mary, hefur ákveðið
að verða kyrr eins lengi og þörf er fyrir
aðstoð hans. Florence segir Karli að
samtökin hafi á sínum snærum sjálf-
boðaliða til að hjálpa fjölskyldum
sem hafa misst ástvini sína. Hann
afþakkar frekari hjálp en þakkar
henni fyrir allt það sem hún hefur
fyrir þau gert. ,,Án þinnar hjálpar
hefðum við ekki getað lifað síðustu
mánuðina í lífi Mary á þann hátt sem
okkur langaði til, ” segir hann.
Florence finnur að hún hefur
unnið gott starf. Hún vill þó ekki
hlusta á hrósyrði samstarfsfólksins.
,,Við erum hér til þess að leiðbeina
en ekki til þess að taka stjórnina í
okkar hendur,” segir hún. „Allt frá
fyrsta degi, þegar ég gekk inn á
heimili Mary og Karls, var ég undr-
andi yfir sambandinu milli þeirra og
við mig. Þau gerðu aldrei ómældar
kröfur til mín, þau miðluðu mér af
sínu. Ég fór alltaf frá þeim vitrari en
ég hafði komið til þeirra.
Eftirmáli: Fyrsta Hospice-þjónustan var
sett á fót í London 1967 af Cicely
Saunders lækni. Connecticut Hospice
var fyrst sinnar tegundar í Bandafikj-
unum og hóf heimilisþjónustu árið
1974. Nú eru starfræktar stofnanir sem
þessi í 50 fíkjum, samtals um 500
talsins. Á þeirra vegum er um 30
þúsund manns veitt aðstoðárlega, þaraf
um 95% krabbameinssjúklingum.