Úrval - 01.02.1982, Blaðsíða 26
24
ÚRVAL
og bókasöfn. Samkvæmt lögum er
ekki heimilt að selja einstaklingum
þær vörur sem þarna er um að ræða.
Við fyrstu sýn gætu menn haldið
að þeir væru komnir inn í birgða-
geymslu land- eða sjóhersins vegna
þess að vöruhúsið er yfirfullt af gas-
grímupokum, skotgrafabúnaði og
hermannajökkum. Roller hefur
safnað þarna að sér nægum búnaði til
þess að búa út nokkuð fjölmennan
her í einhverju einræðisríkinu í Mið-
Ameríku. Það eina sem hann vantar
eru skotfæri. Mikil eftirspurn er eftir
hermannahjálmum, andlitsgrímum,
gasgrímum og einkennisbúningum,
og eru það hinar og þessar betrunar-
stofnanir í Iowa sem óska eftir þessum
hlutum til þess að nota ef til þess
kemur að bæla þurfi niður uppþot
stofnununum.
Roller hefur einnig séð „Ceder
Rapids Air Force” fyrir búnaði. Hann
hefur komist yflr fjórar UH-IB þyrlur
til sjúkraflutninga í borginni. Tvær
þeirra eru flugfærar en hinar tvær eru
notaðar í varahluti. Á söluskrá er
verðmæti þeirra talið vera 250
þúsund dollarar stykkið. Þær kostuðu
Cedar Rapids aðeins 10 þúsund
dollara. Þar við bætist svo að Roller
hefúr útvegað 17 tveggja sæta þyrlur,
sumar hverjar nær ónýtar. Fimm flug-
hæfar vélar hafa risið upp úr rústum
þessara 17 véla.
,,En,” segir Roller, ,,þegar fólk
hugsar um allar umframvörurnar sem
fylgja hernum er það aðeins örlítið
brot af því sem ríkið sjálft leggur
okkur til.” Hann geislar af ánægju
þegar hann fer höndum um 125
metra rúllu af tölvupappír. „Þennan
pappír má nota sem teiknipappír í
skóla,” segir hann. Þarna eru heilir
haugar af rauðum og appelsínulitum
borðalmanökum, statífum undir
nafnspjöld og skjalabökkum.
„Einhver pantaði allt þetta til þess að
hressa upp á umhverfið á einhverri
ríkisskrifstofunni,” útskýrir Roller.
„Nú á þetta dót eftir að lífga upp á
tilveru skrifstofumanna á skrifstofum
í Iowa.”
í gegnum vöruhúsið liggur leið
rennibekkja fyrir leirkerasmiði, hljóð-
færa, vefstóla, plötuspilara, raka-
mæla, tilraunaglasa, salt- og pipar-
stauka, eyrnatappa og kartöflu-
flysjara. Risastórir rennibekkir,
kvarnir og annað álíka stendur þarna
hlið við hlið. Margt af því sem þarna
er kemur frá „Hellinum”, um 30
hektara neðanjarðargeymslu í nánd
við Atchison í Kansas þar sem geymd
hafa verið tæki sem nota átti við her-
gagnaframleiðslu ef til styrjaldar
kæmi.
Roller og starfsbræður hans í
öðrum ríkjum fara um staði á borð
við Hellinn sem þekktir eru í kerfinu
sem uppspretta alls konar dóts. Til
þess að hin einstöku ríki fari ekki í hár
saman út af þessu dóti útdeilir
Washington hverju ríki upphæð sem
það á rétt á að kaupa fyrir (hlutur
Iowa er 3,2 milljónir dollara). Við
þetta miðast svona nokkurn veginn
hversu mikils virði vörurnar mega