Félagstíðindi Stéttarsambands bænda - 01.11.1945, Page 3
FÉLAGSTÍÐINDI
3
Úr Norður-Múlasýslu:
Þorsteinn Sigfússon, Sandbrekku,
Páll Metúsalemsson, Refstað.
Úr Suður-Múlasýslu:
Pétur Jónasson, Egilsstöðum,
Vilhjálmur Hjálmarsson, Brekku.
Úr Austur-Skaftafellssýslu:
Steinþór Þórðarson, Haga,
Kristján Benediktsson, Einholti.
Úr Vestur-Skaftafellssýslu:
Sveinn. Einarsson, Reyni,
Þórarinn Helgason, Þykkvabæ.
Úr Vestmannaeyfasýslu:
Helgi Benónýsson, Vesturhúsum,
Helgi Benediktsson.
Á fundinum voru meðal annars gerðar
eftirfarandi samþykktir:
1. „Fundurinn ályktar að stofna Stéttar-
samband bænda á grundvelli samþykkta
aukabúnaðarþings 1945.
Jafnframt ákveður fundurinn að leyni-
leg atkvæðagreiðsla skuli fara fram meðal
bænda í sambandi við næstu búnaðar-
þingskosningar um það, hvort þessi skipan
skuli haldast framvegis eða stéttarsam-
band stofnað óháð Búnaðarfélagi íslands.“
(Samþ. með 31 : 10 atkv.).
2. „Fulltrúafundur bænda. haldinn að
Laugarvatni dagana 7.—9. sept. 1945,
ályktar að skora á Alþingi að nema það
ákvæði úr lögum um Búnaðarmálasjóð, að
ráðstöfun á fé sjóðsins sé háð samþykki
landbúnaðarráðherra." (Samþ. með sam-
hljóða atkvæðum).
3. „Fundurinn mótmælir eindregið að
ríkisstjórnin skipi 2 fulltrúa til þess að fara
með verðlagsmál landbúnaðarins. Krefst
hann þess, að bráðabirgðalög um Búnaðar-
ráð verði felld úr gildi og að framkvæmda-
stjórn Stéttarsambands bænda verði falið
að ákveða verðlag landbúnaðarvara.“
(Samþykkt í einu hljóði).
4. „Verðlagsráð Stéttasambands bænda
ákveður verðlag landbúnaðarvara á innan-
iandsmarkaði á grundvelli sexmanna-
nefndarálitsins.
Verðlagsráð skal einnig hafa eftirlit með
því að hinar verðskráðu vörur séu ekki
seldar lægra verði en það hefir ákveðið.
Hafi það trúnaðarmenn á helztu markaðs-
stöðum, sem fylgjast með því að verðlags-
ákvæði verðlagsráðs séu ekki brotin.
Nú selur framleiðandi eða verzlun land-
búnaðarvörur undir hinu ákveðna verði.
Er þá verðlagsráði skylt að banna sölu-
félögum bænda að selja allar verðskráðar
landbúnaðarvörur hverju nafni sem nefn-
ast fyrir hinn brotlega aðila og ennfremur
að þeim kaupmönnum eða sölufélögum,
sem brotleg hafa gjörst, séu afhentar verð-
skráðar landbúnaðarvörur til sölu þar til
þessir aðilar hafa skuldbundið sig til að
fara í öllu eftir verðlagsákvæðum verð-
Jagsráðsins." — (Tillögu þessari var vísað
til framkvæmdastjórnar með samhljóða
atkvæðum).
í stjórn og varastjórn voru kosnir með
31 samhljóða atkv.:
Aðalmenn í framkvæmdastjórn:
Sverrir Gíslason, Hvammi,
Jón Sigurðsson, Reynistað,
Pétur Jónsson, Egilsstöðum,
Einar Ólafsson, Lækjarhvammi,
Sigurjón Sigurðsson, Raftholti,
Varamenn:
Sigurður Snorrason, Gilsbakka,
Jón Jónsson, Hofi,
Helgi Jónsson, Seglbúðum,
Gestur Andrésson, Hálsi,
Sveinn Einarsson, Reyni.