Félagstíðindi Stéttarsambands bænda - 01.11.1945, Side 10

Félagstíðindi Stéttarsambands bænda - 01.11.1945, Side 10
10 FÉLAGSTÍÐINDI ár hvert ýtarlega skýrslu um framleiðslu landbúnaðarvara, vinnslu þeirra og sölu, markaði, markaðshorfur og afkomu land- búnaðarins á hverjum tíma. Skylt er öllum þeim fyrirtækjum og stofnunum, er hafa með höndum vinnslu eða sölu landbúnað- arafurða, að láta ráðinu í té allar upp- lýsingar, er því geta að gagni komið við störf þess og þær þeta veitt. II. KAFLI. Um verðskráningu. 5. gr. Hagstofa íslands reiknar árlega út fram- leiðslukostnað bænda. Við útreikning fram- leðislukostnaðarins skal fylgt þeim reglum, sem fyrir er mælt í 4. gr. laga nr. 42 14. apríl 1943, um dýrtíðarráðstafanir, og sam- komulagi sex manna nefndarinnar. 6. gr. Framleiðsluráð hefur á hendi verðskrán- ingu landbúnaðarvara. Við verðskrán- ingu grænmetis og garðávaxta tekur full- trúi Sölufélags garðyrkjumanna sæti í framleiðsluráði og hefur atkvæðisrétt um þau mál. Nú verða atkvæði jöfn um verð- lagning þessara vara, og ræður þá úr- slitum atkvæði fulltrúa sölufélagsins. Heimilt er framleiðsluráði að fela formanni og framkvæmdastjóra ásamt fulltrúa sölu- félags garðyrkjumanna að hafa á hendi verðskráningu grænmetis og garðávaxta milli funda. III. KAFLI. Um sláturleyfi og greiðslu verð- jöfnunargjalds. 7. gr. Verðmiðlun á kjöti, mjólk og mjólkur- vörum skal haga þannig: a. Á mjólk og mjólkurvörum: Innan hvers verðjöfnunarsvæðis haldast núgild- andi ákvæði um sama verð fyrir sams kon- ar vöru á sama sölustað. Skal sú verðjöfn- un framkvæmd, þegar mjóíkurbú verða að taka að sér meira til vinnslu úr mjólkinni hlutfallslega en önnur bú á sama svæði. Auk verðjöfnunar þessarar innan verð- jöfnunarsvæðanna skal verðmiðlun fram- kvæmd milli þeirra þannig, að 1% sé tekið sem verðjöfnunargjald í því skyni af allri mjólk, sem seld er til neyzlu, og skal því varið til jöfnunar á verðminni vörur mjólk- urbúanna skv. ákvörðun framleiðsluráðs. Því er ennfremur heimilt að styðja fram- leiðslu rjómabúa og smjörsamlaga af þessu fé á sama hátt og mjólkurbúanna. b. Á kjöti: Verðmiðlun á kindakjöti skal framkvæmd á innlendum markaði þannig, að sama verð fáist fyrir sams konar vörur á sama sölustað, auk þess skal útflutt kinda- kjöt tekið í hina sömu verðjöfnun sem það, er selst innan lands, þegar mismunur er á verði á innlendum og erlendum markaði. 8. gr. Framleiðsluráð ákveður verðmiðlun á 1. og 2. flokks dilka- og geldfjárkjöti svo og á vinnslumjólk og mjólkurvörum milli verðjöfnunarsvæða. Verðjöfnun á mjólk og mjólkurvörum innan verðjöfnunarsvæða aunast hlutaðeigandi sölustjórnir hver á sínu svæði. 9. gr. Framleiðsluráð annast um framkvæmd verðmiðlunarinnar og aflar sér þeirra gagna, er það telur sér þörf á, þar á meðal skýrslna frá eftirgreindum aðilum: a) þeim, er sláturleyfi hafa, um móttek- ið kindakjöt, greint eftir flokkum, ásamt skýrslu um kjötsöluna svo og skrá yfir kjötbirgðir sínar; b) mjólkurbúum um móttekið mjólkur-

x

Félagstíðindi Stéttarsambands bænda

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagstíðindi Stéttarsambands bænda
https://timarit.is/publication/1916

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.