Félagstíðindi Stéttarsambands bænda - 01.11.1945, Síða 18

Félagstíðindi Stéttarsambands bænda - 01.11.1945, Síða 18
18 FÉLAGSTÍÐINDI ári í tveim hreppum í hverri sýslu landsins. Á þessum tölum er svo byggður útreikning- ur á meðalverði vinnukaups, sem íslenzkir bændur hafa orðið að greiða á þessum ár- um. Því miður eru frumdrög þau, sem Hag- stofan fær til þessara útreikninga of ófull- komin til þess að sýnd verði sú mynd, sem æskilegt væri að kynnast, en það er mann- val það, er stundar landbúnaðarvinnu. Iieimildirnar, og um leið niðurstöðurnar, greina aðeins frá kynferði þess fólks, sem stundað hefir vinnumennsku eða kaupa- mennsku í sveit, en um aldur þess er ekki getið. Þó eru gefnar upplýsingar um kaup unglinga á vissu aldursstigi. Þá er og gerður greinilegur mismunur á kaupgjaldi á ýmsum tímum árs. Saman- borið við upplýsingar um þessi efni hjá öðrum þjóðum, erum við skammt á veg komnir, eins og raunar á fleiri sviðum, þeim, er varða hagsmunaatriði atvinnu- veganna á líðandi stund. Þetta er eiginlega eftirtektarvert fyrir- brigði, einkum þegar þess er minnst, að við söfnum talsverðu af tölum um eitt og annað, sem varðar atvinnuvegi okkar, en flestar þeirra hafa meiri sögulega þýðingu en raunhæfa. Á þessu sviði er því verkefni til úrbóta fyrir höndum: Ýmsar ástæður geta verið því valdandi, að fólk í öðrum löndum hefir fleiri launa- stig við landbúnaðarvinnu en við eigum að venjast. Fer launastiginn alltaf eftir aldri, kunnáttu og starfshæfni einstakling- anna. Til þess að sýna mismun þann, sem er á upplýsingum um vinnulaunin hjá okkur annars vegar og Dönum hins vegar fylgir eftirfarandi yfirlitsskrá: Mánaðarkaup við landbúnaðarvinnu frá 1. nóv. 1944 til 31 okt. ’45 Veturinn 1944—45: Danmörlc: ísland Ráðsmaður . . kr. 156 Vinnumaður eldri en 20 ára 147 ——- 17 til 20 ára 131 kr. 348 Fjósamaður eldri en 20 ára 180 17 til 20 ára 157 Vinnukona eldri en 18 ára 93 kr. 254 yngri en 18 ára 70 Verkamaður með tímakaup, með fæði . 110- -128 au. á st. ? — án fæðis .. 130- -142 au. á st. ? Sumarið 1945 Ráðsmaður .. kr. 293 Vinnumaður eldri en 20 ára 269 vor og haust 817 17 til 20 ára 234 kr. 950 Fjósamaður eldri en 20 ára 297 sumar 1217 17 til 20 ára 253 Vinnukona eldri en 18 ára 110 vor og h. 452 sumar 628 yngri en 18 ára 81 kr. 511 Verkamaður með tímakaup, með og án fæðis: eins og að vetri

x

Félagstíðindi Stéttarsambands bænda

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagstíðindi Stéttarsambands bænda
https://timarit.is/publication/1916

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.