Úrval - 01.04.1983, Side 12
10
ÚRVAL
grein fjallar um ofbeldi og meiðsli,
um óeðlilegan dauða.
Réttarlæknisfræði er nútíma-
vísindagrein, þótt rekja megi upp-
haf hennar langt aftur, en á síð-
ustu tveimur áratugum hefur hún
verið viðurkennd sem sérstakt fag.
Flestar helstu borgir Bandaríkjanna
hafa falið líkskoðunina réttarlæknum
sem nú rannsaka dánarorsakir fólks.
Líkskoðarinn er kjörinn eða valinn
starfsmaður sem ekki þarf endilega að
vera læknislærður. Venjulegast er
hann ekki læknir sjálfur heldur ræður
lækna til þess að framkvæma
krufninguna.
Nú munu vera um eitt hundrað
útlærðir réttarlæknar í fullu starfi í
Bandaríkjunum og flestir eru þeir 1
stærstu borgum landsins. (Úti á
landsbyggðinni og í úthverfum stór-
borganna starfa sjúkdómafræðingar á
sjúkrahúsum oft sem réttarlæknar og
þá 1 hlutastarfi.) Ef eitthvað grunsam-
legt kemur fram varðandi dauðsfall,
eitthvað sem virðist óeðlilegt, er þeim
fengið málið til athugunar. Með
þeim starfar heill her réttarvísinda-
manna: rannsóknarmenn, eiturefna-
fræðingar, líffræðingar, sérfræðingar
1 skotvopnum og í meðferð sprengi-
efna, smásjárfræðingar, tannlæknar,
mannfræðingar, meira að segja
sálfræðingar. Réttarlæknirinn eða
líkskoðarinn sker úr um það hver hafi
verið dánarorsök meira en hálfrar
milljónar manna árlega eða í um það
bil einu af hverjum fjórum dauðs-
föllum. Handtökur og dómar
byggjast síðan á niðurstöðum þessara
manna og stundum er fólki sleppt
sem hefur verið kært á röngum for-
sendum. Þeir finna líka sitthvað sem
er hættulegt heilsu almennings og þá
eru ný lög oft sett til að koma í veg
fyrir ónauðsynleg dauðsföll.
Þekktasti réttarlæknir Bandaríkj-
anna er Jack Klugman. Á hverjum
fimmtudegi má segja að hann heim-
sæki milljónir heimila sem stjarna í
sjónvarpsþáttum NBC-sjónvarps-
stöðvarinnar. Þar er hann kallaður
„Quincy”. Klugman vinnur krafta-
verk á sviði réttarlæknisfræðinnar og
hvað eftir annað sannar hann á
vísindalegan hátt að dánarorsök hefur
verið önnur en hún í fljótu bragði
virtist vera.
Flestir réttarlæknar eru Quincy
þakklátir fyrir að hann skuli gera al-
menningi á þennan hátt ljóst hvílíkt
starf þeir vinna en kvarta um leið yfir
því að hetjan skuli á einni
klukkustund gera það sem heilum
hópi sérfræðinga tekst ekki á
skemmri tíma en nokkrum dögum
eða jafnvel vikum. Þeir saka hann
einnig um að fara með hlutverk hins
reiða málafærslumanns. ,,í raunveru-
leikanum látum við okkur engu
skipta hver framdi glæpinn,” segir
Michael Baden, yfirréttarlæknir í
New York-borg. „Starf okkar er að
finna hvað olli dauðanum og hvernig
hann bar að.”
Einmitt þetta var ástæðan fyrir því
að Leslie Mootoo, réttarlæknir í
Guyana, kom í Þjóðarhofið í Jones-