Úrval - 01.04.1983, Page 26

Úrval - 01.04.1983, Page 26
24 ÚRVAL 115 koparpeningar sem slegnir hafa verið í sex löndum í stjórnartíð átta konunga. Þarna er einnig að finna safn hringa, heiðursmerkja, Möltu- krossinn, átta gullkeðjur og ótrúlega fjölbreytt og merkilegt safn hergagna sem varpa nýju ljósi á dýrgripa- og vopnasafnið um borð í spænska flotanum. Fáir myndu hafa haft næga þolin- mæði til þess að svipta hulunni af sögu Lastdrager, birgðaflutningaskips hollenska Austur-lndíafélagsins, sem hvarf árið 1653. Sténuit byrjaði á því að leita í mörg þúsund skýrslum skipafélagsins um siglingar skipanna til að geta verið viss um að skipið hefði í raun og veru verið á leið til Indía þegar það sökk norðan við Yell á Hjaltlandseyjum. Skipið átti að hafa verið með 400 tonn af vörum frá Evrópu, gullstangir og yfir 37.500 flórínur. Hann las einnig allt sem hann gat komist yfir á prenti, bæði nýtt og gamalt, um sögu félagsins. Eftir margra mánaða vinnu rakst hann loks á frásögn um skiptapann sem höfð var eftir manni sem komst af, Jan Camphuijs: ,,Ég kastaðist upp á klettana og loks náði ég svo langt upp að ég gat gripið með höndunum í grastó. Ég lagði af stað gangandi. . . skyndilega féll ég niður í ferskvatns- brunn og við sjálft lá að ég drukknaði í honum. Ég sá eldglæringar í loftinu. . . og þegar ég gekk í áttina að þeim rakst ég á steinhús þar sero járnsmiður var að vinnu. ’ ’ Rannsóknir á miklu dýpi Sténuit lagði af stað til Yell-eyjar í rannsóknarleiðangur. Á Crussa Ness-' tanga rakst hann á rústir af steinhúsi og á vesturströndinni fann hann brunn. Gömul kona, sú síðasta sem búið hafði í húsinu sem nú var hrunið (árið 1913), sagði honum að það væri rétt, að minnsta kosti segði sagan að þarna hefði verið smiðja járnsmiðs. Næsta dag hófu Sténuit og menn hans rannsóknir í sjónum fyrir utan. Ekki hafði kafarinn Louis Grosse verið nema tæpar þrjár klukkustundir í ís- köldum sjónum þegar hann fann fall- byssu og hollenskan pening með ár- talinu 1632. Þetta staðfesti að Last- drager myndi liggja þarna á hafs- botni. ,,Ekkert verður eftir nema brakið eitt af skipsskrokki sem legið hefur í þrjár eða fjórar aldir í sjónum hér um slóðir,” segir Sténuit. ,,Það eina sem við fundum úr Lastdrager sjálfu voru fáeinar stórar járnskrúfur og einn þumlungur af hampreipi. ’ ’ Það getur tekið fjögurra til fimm manna hóp kafara frá sex mánuðum upp 1 nokkur ár að grafa upp skips- flak sem þetta. Á „hlýju mánuðun- um”, maí til september, geta kafar- arnir verið fimm stundir á dag niðri í vatninu sem sjaldan er heitara en 10 stig á Celsíus. Kuldinn smýgur inn í skrokkinn, þeir verða stífir í hnakkan- um og þróttlitlir.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.