Úrval - 01.04.1983, Side 53
FJÖRUGUR DANSÁ ÖLDUM HAFSINS
51
dýr um miðjan sjöunda áratuginn.
Samkvæmt ákvörðun Alþjóða
hvalveiðiráðsins hafa hnúfubaka-
veiðar verið bannaðarfrá 1966.
Vegna þessara friðunarráðstafana
eru þessir sjávarrisar að koma til aftur.
Þegar hafa borist spurnir af litlum
torfum hnúfubaka í norðanverðu
Kyrrahafí. Vonandi lífga hinir
fjörugu leikir hnúfubakanna í
nálægri framtíð á ný upp á víðáttur
úthafanna.
Talnaskemmtun
Hugsaðu þér einhverja tölu, stærri en 0. Margfaldaðu hana með
þrem. Bættu einum við. Margfaldaðu með þrem. Bættu upphaflegu
tölunni við. — Útkoman endar alltaf á þrem. Strikaðu þessa þrjá í
burtu og eftir stendur talan sem þú hugsaðir þér.
Hugsaðu þér einhverjar þrjár tölur í röð (frá 1 upp í 9)- Snúðu
þeim við. Dragðu svo lægri töluna frá þeirri hærri. Útkoman verður
alltaf 198. Tökum dæmi: Þú hugsar þér 456, snýrð þeirri tölu við sem
þá verður 654. Dregur 456 frá henni og útkoman er 198. Reyndu
með fleiri tölur.
Amman átti að passa tvíburana Pétur og Karl, sex mánaða pjakka
sem voru svo líkir að hún þekkti þá ekki í sundur. Þegar hún hafði
orð á því við dóttur sína, móður tvíburanna, sagði hún bara:
,,Spurðu Bjarna litla, hann hjálpar þér.” Bjarni, fjögurra ára, kink-
aði kolli en hann var niðursokkinn í að horfa á Tomma ogjenna.
Amman lét strákana í bað og allt gekk vel. Þegar hún ætlaði að
klæða þá í spurði hún Bjarna: , ,Hvor er nú hvor?
„Enginn vandi,” svaraði Bjarni. ,,Pétur er alltaf hafður í bláum
fötum. ’ ’
Þjófur réðst á vinkonu mína og tókst að rífa af henni hálsfesti. Hún
greip í hálsmál hans og reyndi að hindra hann en tókst ekki. Þegar
hún síðan var beðin um lýsingu á þjófnum sagði hún:
,,Verið þið ekkert að leita að honum. Hálsfestin mín var ómerki-
leg. En þegar ég þreif í hálsmál hans slitnaði keðja sem hann var með
um hálsinn og þegar hann reif sig lausan af mér hélt ég henni eftir.
Hún er úr ekta gulli!”
P.S.