Úrval - 01.04.1983, Side 66

Úrval - 01.04.1983, Side 66
64 IJRVAL Árið 1980 uppgötvuðust á yfir- borði sólarinnar segulmagnaðar ár. , Stjarnfræðingarnir Robert Howard og Barry LaBonte, sem starfa við Hale Observatories í Kaliforníu, veittu eftirtekt straumum sem einu sinni á ellefu ára tímabili taka að mynda spírala eftir yfirborði sólarinnar frá norðurpól hennar til suðurpólsins. Straumarnir flæða um leið frá þessum pólum. Eftir 22 ára framsókn hverfa árnar skyndilega eftir að þær eru komnar nærri miðbaug sólarinnar. Svo virðist sem þessar ár séu lykill- inn að leyndarmálinu um sólblettina vegna þess að þegar þær ná um 30 gráður norður og suður fyrir sólarmið- bauginn byrja sólbiettirnir að vella upp á milli þeirra. Sólblettirnir koma tveir og tveir saman. Þeir eru dökkir á lit og kaldari heldur en yfirborð sólarinnar um- hverfis þá, það er af því að kraftmikið segulsvið þeirra heldur niðri heitu gasi sem annars staðar sýður upp. Blettirnir taka að eyðast þegar segul- árnar hverfa að lokum, augsýnilega inn í sólina. Soiar Max fylgdist með því 1 apríl 1980 þegar segullykkja spann sig upp frá yfirborði sólarinnar og rak í burtu segulboga sem hékk þar yfir. Þetta byrjaði með sólgosi en fátt er jafn- ofsafengið og sólgos. Sólgos geta haft mjög alvarlegar afleiðingar fyrir jörðina. Fyrstu áhrif- anna gætir um það bil átta mínútum eftir að geislar sem streyma út frá sól- inni lenda á andrúmsloftinu um- hverfis jörðina. Því fylgja útvarps- truflanir og einnig hætta að berast merki frá gervihnöttum. Klukkustund eftir gosið nær bylgja sólarprótóna jörðinni. Síðan koma áhrifin fram í rafstraumi sem hlaupið getur eftir símalínum og sömuleiðis valdið því að rafmagn fer af. Sólgosin eyða upp ósonlaginu í lofthjúpnum umhverfis jörðina og verða til þess að meira af útfjólubláum geislum kemst 1 gegnum hann og getur það orsakað húðkrabba hjá fólki. Áratugum saman hafa vísinda- menn verið að reyna að finna einhver tengsl milli sólblettanna og veðrátt- unnar. Erfitt getur verið að sanna nokkuð í þessu sambandi af því að veðráttan er svo sannarlega flókin. Við vitum þó að við sólgos hitnar ysti hluti andrúmsloftsins umhverfis jörð- ina og þenst út. Með 22 ára millibili hafa verið þurrkar á hásléttunum í Bandarlkjun- um og nú síðast á undanförnum árum. Getur verið um tengsl að ræða milli þessa og 22 ára sólblettahrings- ins? Vísindamenn telja að svo sé en þeir hafa ekki getað fært nægar sönn- ur fyrir því enn sem komið er. All- margir vísindamenn hafa komist að raun um að eftir því sem meira er að gerast á sólinni verða eldingar tíðari hér á jörðinni. Veldur það aukinni úrkomu eða ekki? Verða vindar sterk- ari og skýjafar annað? Svörin eru margbreytileg rétt eins og sólin sjálf. Áhrif sólarinnar á segulsvið jarðar- innar breyta augsýnilega stefnu vind-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.