Úrval - 01.04.1983, Síða 67
SÓLIN í NÝJU LJÓSI
anna hátt uppi í andrúmsloftinu, eins
og til dæmis vestlægra vinda sem þar
fara um með 400 km hraða á klukku-
stund. Á árunum milli 1976 og 1979
fylgdi þessum vestlægu vindum
óvenju mikill kuldi að vetrarlagi í
austanverðum Bandaríkjunum.
Vísindamenn sem fylgdust með sól-
inni tóku þá eftir að sólblettum fjölg-
aði hægar en búist hafði verið við.
Snemma árs 1979 var sólblettunum
farið að fjölga og í mars 1980 var
65
komið annað mesta sólblctta-hámark
sem skýrslur eru til um. Veturinn var
mildur. Sumarið 1980 kom mesta
hitabylgja sem menn muna á síðari
árum.
Við erum rétt að byrja að skilja
hvaða áhrif sólin hefur á líf okkar.
Við vitum þó ekki enn hvers vegna
ljósið frá henni flöktir eins og raun
ber vitni. Eitt er víst að stjarnan, sem
við erum fædd undir, mun ákveða
örlög okkar og framtíð alla.
Það er svo margt sem ekki þarf að gera í hvelli. Til dæmis geta slm-
töl svo oft beðið. Spurningar og ákvarðanir leysast stundum af sjálfu
sér fái þær að bíða.
Hljómfall llfsins er flókið en reglulegt, sterkt en brothætt. Ef þú
gerir þér grein fyrir þessu hefurðu dýrmætan lykil undir höndum.
-Shirley M. Hufstedler
Ástleitni hins 75 ára gamla brúðguma var alveg að gera út af við
brúðina. Þegar smáhlé varð á, vegna þess að hann þurfti að raka sig,
ráfaði hún inn á kaffistofu hótelsins.
,,Er eitthvað að, elskan?” spurði þjónustustúlkan. ,,Þú ert ung en
brúðguminn roskinn, samt er engu líkara en þú sért dauðuppgefin. ’’
„Hann plataði mig svo sannarlega. Hann sagðist hafa sparað í sex-
tíu ár. Ég hélt að hann væri að tala um peninga.
,,Ég sagði konunni minni að það væri eins með karlmanninn og
vínið, hvort tveggja batnaði með aldrinum. Vitið þið hvað hún
gerði? — Hún lokaði mig niðri í kjallara.
-Rodney Dangerfield
Flugvélin var á leið frá Tampa á Flórída til Minneapolis. Eftir
tveggja tíma flug kom kunnugleg orðaruna úr hátölurunum: ,,Herr-
ar mínir og frúr, það er flugstjórinn sem talar. . .” Með sterkum
Suðurríkjahreim hélt hann áfram: ,,Ég hef góðar fréttir að færa en
líka slæmar. Fyrst þær slæmu. Núna er 21 stigs frost 1 Minneapolis.
Þær góðu: Vegna mikils mótvinds seinkar okkur um tuttugu mínút-
ur.”