Úrval - 01.04.1983, Page 71

Úrval - 01.04.1983, Page 71
HVÍERUSTJÖRNURNAR ÞÖGLAR? maðurinn þeirra var? Er það á hans valdi? Framþróun þeirra er milljón ára gömul en gervöll saga mannsins sem tegundar nær aðeins yfir nokkur hundruð aldir! Svo fjarlæg framtíð er okkur enn óskiljanlegri heldur en út- varp hefði verið mammútveiðimanni. Hvað hefði geimskot, þetta ,,verk- fræðiundur” okkar tíma, séð úr tuga kílómetra fjarlægð, hafa merkt í aug- um slíks veiðimanns? Hefði hann lit- ið á það sem eðlilegan hlut eða þvert á móti sem yfírnáttúrlegt fyrirbæri? Hvað sem honum hefði verið sagt eða sýnt hefði það naumast sannfært hann um að þrumurnar og eldingarn- ar, sem fylgja geimskoti, væru afleið- ing athafna fólks í líkingu við hann sjálfan. Því miður, „stjarnverkfræðileg undur”, gerð af menningarverum sem væru milljón árum á undan okkur í þróuninni, væru okkur and- lega ósýnileg, jafnvel þótt þau ljóm- uðu yfir okkur, jafnvel þótt við horfð- um stöðugt á þau. Auk þess sér maðurinn ekki eins mikið með augunum eins og huganum. Þetta vissu jafnvel Forn-Grikkir. Og það sem hugurinn er ekki reiðubúinn að viðurkenna er annað tveggja ,,ekki til” eða birtist í einbverju óþekkjan- legu formi. Við getum ekki varist því að skoða ytri geiminn í gegnum prisma ríkj- andi kenninga. Við sjáum þar aðeins það sem er ekki í of áberandi mót- sögn við núverandi hugmyndir okkar 69 um náttúruna og athafnir menningarvera. I þessu felst hinn mikli hængur sem er á því að upp- götva „gamlar” menningarverur, jafnvel þótt þær líkist okkur í öllum meginatriðum, eins og við ákváðum að gera ráð fyrir. Rökfræðin hefur brugðist okkur: Mikið aldursbil menningarsamfélaga auðveldar ekki, heldur gerir það erfiðara, að uppgötva merki um menningarverur utan jarðarinnar. Við skulum nú breyta aðstæðum. Við skulum ekki hirða um þúsund ára bilið (hver og einn getur auðveldlega ímyndað sér hvað 10. aldar maður hefði haldið um menningu okkar. Ég er hræddur um að fyrstu viðbrögð hans hefðu orðið: ,,Vík frá mér, Satan!”). Við skulum taka aðeins 100 ára bil sem dæmi. Við skulum flytja okkur til ársins 2082, lokastigs núverandi vísinda- og tæknibyltingar (eða kannski hátinds nýrrar?). Það er erfitt að segja fyrir um tæknieinkenni ársins 2082. Jafn- vel framtíðarfræðingum eru þau hui- in þéttri þoku. En samanburður nútímans við hið liðna hjálpar okkur. Gerum þess vegna aðra tilraun til þess að leysa andstætt vandamál: Hversu skiljanlegur hefði nútíminn (1982) verið mönnum á árinu 1882? Við skulum ímynda okkur vísinda- menn þess tíma stadda á Mars með öll sín rannsóknartæki. Loftið um- hverfis þá væri fullt af brotum út- varps- og sjónvarpssendinga, deyfð- um af fjarlægðinni, en jafnvel for-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.