Úrval - 01.04.1983, Síða 77
BOÐSKAPUR 6000 HJÓNASKILNAÐA
skildir er áberandi líkur í mörgum
tilfellum.
Flestir ganga í gegnum þrjú á-
kveðin stig. Það fyrsta er að afbera
veruleikann, þá verður að iifa einn
dag í einu, reyna að komast yfir á-
fallið, reiðina og sársaukann, næst
kemur heilbrigðisstigið, stig sjálfs-
rannsóknar og skipulagningar fram-
tíðarinnar, og það þriðja er endur-
uppbyggingarstigið þar sem öllum
kröftum er beint að því að skapa nýja
tilveru.
Að afbera veruleikann
Eftir skilnað líður aðilum yfirleitt
illa andlega, þeir eru ekki í jafnvægi
og í tilfinningalegu uppnámi. Sá
aðilinn sem var svikinn, sem var
,,lagt”, er sá reiði, en sá sem yfirgaf
makann er sá sakbitni.
Ég minnist tilfellis þar sem æva-
reiður eiginmaður gaf eftirlæti kon-
unnar sinnar, púðluhundi, eitur.
Hún svaraði með því að klippa háls-
bindin hans, skyrtur og jakka í
tætlur. Annar maður eyðilagði síma
konunnar sinnar um leið og hann
hrópaði: ,,Þá geturðu að minnsta
kosti ekki þvaðrað við elskhuga
þinn!” Á þessu ,,geggjunar”tímabili
skiptast aðilar á bitrum móðgunum,
gera lítið hvor úr öðrum og segja
hverjum sem heyra vill hvílíkur
ónytjungur og rotinn persónuleiki
hinn sé. Ég á þrjú ráð fyrir þá sem eru
á þessu stigi:
Haltu fjandskapnum innan ramma
einkalífsins. Það getur verið gott að
75
viðra reiðina en gerðu það ekki
opinberlega. Oðrum finnst það
óþægilegt og þig mun fljótlega iðra
þess að hafa opinberað einkalíf ykkar
í áheyrn annarra. Það verður ekki hjá
því komist í framtíðinni að hafa ein-
hvers konar samband við fyrrverandi
maka en ef þið þolið ekki að sjá hvort
annað verður mun erfiðara að ná
viðunandi samkomulagi um ýmis
mál.
M.undu að bœði hafa gert mistök.
Ef þú hugsar málið vel verðurðu að
viðurkenna að sökin liggur hjá ykkur
báðum. Þegar þú hefur viðurkennt
þetta rénar reiðin og sektarkenndin;
þá verður llka auðveldara að safna
saman brotunum og byrja upp á nýtt.
Forðastu að láta biturleikann ná
tökum á þér eins og: ,,Ég gaf henni
(honum) bestu ár ævinnar og hvað
hef ég fengið í staðinn?” Þegar þið
giftust völduð þið hvort annað. Þú
hélst að það væri það albesta. Á þeim
tíma — og kannski í mörg ár eftir það
— veitti hjónabandið ykkur gleði og
ávinning. Það felst mikill sannleikur í
þessum orðum: ,,Það er betra að hafa
elskað og misst en að hafa aldrei
elskað.”
Fleygðu þér ekki blint í nœsta fang.
Bæði karlmenn og konur eru við-
kvæm fyrst eftir skilnaðinn. Konan
hefur kannski glatað sjálfsvirðing-
unni þegar hún finnur sig „hrakta”
og niðurlægða af mannsins hálfu. Oft
reynir hún að fá uppreisn æru með
því að stofna til ástarsambanda við