Úrval - 01.04.1983, Page 78
76
ÚRVAL
tilfallandi menn. En hún kemst að
því að slík sambönd bæta ekki úr
tómleikanum og tilgangsleysinu. Á
sama máta reynir karlmaðurinn að
slæva særða hégómagirnd með því að
kasta sér út í ástarævintýri, stundum
með yngri konum, kaupa falleg föt,
nýjan bíl eða fara út að skemmta sér á
hverju kvöldi. Bindi hann trúss sitt
við miklu yngri aðila meðan þessi
„endurnýjun æskudaganna” stendur
yfir er hætta á að grundvöllur annars
mislukkaðs hjónabands sé lagður.
Heilbrigðisstigið
Eftir fyrsta stig reiði og jafnvægis-
leysis kemur tími þegar þú ert svart-
sýnn, áhugalaus og hefur ekki löngun
til að umgangast aðra. Þú „sleikir
sárin”, hugsar aftur og aftur um það
sem skeði í rauninni og veltir fyrir þér
hvernig þú eigir að leysa öll vanda-
málin sem fylgja þessum nýju
aðstæðum. Eftir því sem þú verður
uppteknari við að koma á hagkvæm-
um breytingum hversdagslífsins
máist þunglyndið út eins og fyrir
kraftaverk, sárin gróa og þú sérð
heiminn í nýju ljósi. Þú getur gert
ýmislegt til að koma þessari þróun á
skrið:
Reyndu að láta börnin umgangast
þroskað fólk. Ef þú átt börn skaltu
varast að falla í þá gryfju að ofvernda
þau eða dekra, sama þótt þér finnist
að þú verðir að koma í stað beggja
foreldranna. Talaðu aldrei illa um
fyrrverandi maka við barnið; það
eykur aðeins á sorgina og baráttuna
sem barnið giímir við. Reyndu að
láta barnið vera með einhverjum
fullorðnum af gagnstæðu kyni, svo
sem afa eða ömmu eða frænda eða
frænku. Reyndu ekki að skapa náið
samband milli barnsins þíns og ein-
hvers karls eða konu sem þú ert að slá
þér upp með. Núverandi félagi gerir
kannski allt sem hann getur til að
vera almennilegur við börnin — til að
vinna þig — en hverfur úr lífi
barnsins um leið og sambandið fer
upp í loft. Þá finnst barninu með
réttu að enn einn fullorðinn hafi
svikið það.
Finndu nýja vini og áhugamál. I
mörgum eldri hjónaböndum markast
umgengnisvinahópurinn af fólki sem
er á einn eða annan hátt tengt vinnu
eiginmannsins. Þegar hann hverfur
úr myndinni tapar hún af mörgum
sameiginlegum vini. En hafi það
aftur á móti verið konan sem dró að
utanaðkomandi sambönd er það
maðurinn sem stendur utan við.
Gefðu þér tíma til að hressa upp á
gamlan kunningsskap og eignast nýja
vini.
Enduruppbyggingar-
stigið
Samkvæmt minni reynslu er karl-
maður um það bil eitt og hálft ár að
ná sér eftir skilnað en það getur tekið
konu nokkur ár að verða sjálfstæður
einstaklingur. Eftir að markinu er náð
má segja að fjórar af hverjum tíu kon-
um blómstri verulega. Það er eins og