Úrval - 01.04.1983, Page 97

Úrval - 01.04.1983, Page 97
NÆSTUM OFSEINT 95 langaði mig að leggja að baki eins fljótt og kostur var. Um leið og hann færi að blása á sunnan yrði sú ferð hættulegri. Eftir því sem við fjarlægðumst búð- irnar hvessti meira og meira af norðri. Stormur og sjór næddi um okkur af fullum krafti. Vindurinn kallaði tár fram í augun. Öldurnar vippuðu sér fimlega eftir flekanum, bleyttu fötin okkar og gerðu kuldann naprari. Þó að sjávar- föllin væru okkur hliðholl komumst við ekkert áfram fyrir nístandi storm- inum. Ég sagði það eina sem hægt var að segja. „Snúum við. Það er ekkert vit í þessu. ’ ’ Þegar til strandar kom settist ég fast við eldinn. Ég hóstaði og reyndi að losa stíflu í nefinu með því að anda í gegnum það. Þegar kalt loftið mætti sviðanum í nefgöngunum skildist mér af hverju mér hafði verið óglatt og hve ég var ræfilslegur. Ég sagði við krakkana: „Almáttugur. Ég er með flensu. Þess vegna hef ég verið svona. Ég hef verið með flensu allan tímann.” Við ræddum hvernig málin stóðu. Vegna þess hve ferðalög voru oft erfiðleikum bundin voru heimsóknir okkar til tannlæknisins óreglulegar. Þar myndi enginn tilkynna hvarf okkar fyrst um sinn. Þessi staðreynd virtist ekki skapa svo mikinn vanda. Ef okkur tækist að bjarga okkur innan skamms tíma skipti það ekki svo miklu máli. En núna, þegar sex dagar voru liðnir frá skiptapanum, horfði málið öðruvísi við. Margery myndi búast við mér I heimsókn fyrsta föstu- daginn eftir að við kæmumst heim í flothúsið, það er að segja ef veður leyfði. ,,Það eru fjórir dagar þar til hún lætur vita.” ,,Ég vildi óska að svo væri,” sagði Cindy. ,,En ég held að hún geri það ekki. Við höfum áður verið sein, pabbi. Við fórum ekki einu sinni í gegnum tollinn. Einmitt núna.” Norðangarrinn jókst með kvöldinu. Öldutopparnir á sundinu voru hvítfyssandi. Við gátum ekkert gert annað en bíða. Ljóst var að þróttur Cindy ogjenu fór þverrandi með hverjum degi sem leið. Þær hímdu við eldinn. Fætur Cindy urðu aumari eftir því sem lengra leið og saltstorknar buxurnar höfðu nuddað húðina af á hnjánum. Randy var sá eini sem var á ferli á ströndinni og tíndi saman krækling og eldivið. Hann vissi að kofinn var kannski aðeins rúma fjörutíu kílómetra undan og biðin á ströndinni var honum því erfið. Um sólarlag lægði vindinn og sundið kyrrðist. Það var að falla að og við gátum ekki beðið lengur. Við yrðum að ferðast að næturlagi. Ég áleit að best væri að fara yfir sundið þegar vindur leyfði og sagði Randy að við skyldum reyna að þoka okkur áleiðis yfir. Kannski gætum við komist í rólegheitum leiðar okkar meðfram strönd Dalleyju þótt
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.